22.04.1932
Neðri deild: 57. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2331 í B-deild Alþingistíðinda. (2669)
258. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:
Það er helzt að skilja á sumum hv. þm. að ekki sé til nema eitt réttlætismál, og aldrei hafi komið til mála nema í þetta eina skipti að sýna réttlæti. nú vil ég meina, að flest mal, sem barizt hefir verið fyrir og fram hafa gengið hér á Alþ., séu réttlætismál. Hitt vil ég líka meina, að slík mál eigi að lifa á þeim rökum, sem búa í þeim sjálfum. Og hafi demokratisk stj. nokkra kosti, þá er það. fyrst og fremst þetta, að ef mál eru fram borin af knýjandi réttlætisþörf og sótt fast á eftir ár frá ári, þá sigra þau alltaf að lokum.
Slíka trú á sínum málstað vil ég heimta af hv. sjálfstæðis- og jafnaðarmönnum eins og hverjum öðrum, sem berjast vilja fyrir réttlætismálilm. Ef þeir hinsvegar segja: „Ef við viljið ekki vera okkur sammala þarna, þar, sem okkur ber e. t. v. á milli, þá skulum við ekki heldur vera ykkur sammála um hitt, sem við þó erum í raun og veru sammála ykkur um“, þá er öll samvinna komin út í veður og vind. Ég vil gera þá kröfu til hv. stjórnarandstæðinga, að þeir sætti sig við að vera okkur sammála í heim málum, sem þeir eru í raun og veru sammála okkur um, þó annarsstaðar kunni eitthvað að bera á milli.
Hvað snertir skattamálin, þá er Alþ. þannig skipað þrátt fyrir alla galla, sem á kosningafyrirkomulagi og kjördæmaskipun kunna að vera, að enga skattalöggjöf er hægt að setja nema hún hafi meiri hl. þjóðarinnar að baki sér. Það er því ekki hægt að óttast, að fulltrúar minni hl. þjóðarinnar leggi álögur á meiri hl. an hans vilja; hvort sem samvinna yrði milli framsóknarmanna og jafnaðarmanna eða milli framsóknarmanna og sjálfstæðismanna, þá hafa ráðstafanir þeirra meiri hl. þjóðarinnar að baki sér.