02.06.1932
Efri deild: 90. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2343 í B-deild Alþingistíðinda. (2689)
258. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Jón Þorláksson [óyfirl.]:
Frv. þetta fer fram á bráðabirgðabreyt. á nokkrum lögum, sem fjalla ýmist um fjárgreiðslur úr ríkissjóði eða tekjur handa sérstökum stofnunum. Að formi til eru þessir liðir allir taldir í einni gr., en við atkvgr. í Nd. var hver liður borinn upp sérstaklega, með því að svo var lítið á með réttu, að liðir þessir væru að efnishlið óskildir, þótt heildartilgangur frv. sé að auka tekjur ríkissjóðs. hér eru einkum tveir liðir, sem ég hefði óskað breyt. a. Það er 3. liður, um að tekjur af tóbakseinkasölunni renni í ríkissjóðs næstu tvö ár. Þessar tekjur eru nú ánafnaðar verkamannabústöðunum og byggingar- og landnámssjóði. Þessar stofnanir njóta að vísu annara framlaga, en þó hefði ég viljað fá samkomulag um, að eitthvað af þessum tekjum gæti gengið til verkamannabústaðanna framvegis. Hvað byggingar- og landnámssjóð snertir tel ég ákvæði frv. ekki athugavert, þar sem hann fær 200 þús. kr. eftir öðrum lögum og engar till. hafa komið fram um, að því verði breytt. Ég hefði því viljað óska fundarhlés nú, svo að tími ynnist til að bera sig saman um að breyta þessum lið í hóflegra horf gagnvart verkamannabústöðunum, eða þá að liðurinn verði felldur út, svo að hægt væri að ná samkomulagi um breyt. við 3. umr.
Sama er að segja um 8. liðinn, sem er um það, að helmingur af tekjum Menningarsjóðs renni í ríkissjóð í tvo ár. Ég er ekki ánægður með það, hvernig þetta ákvæði er orðað, þótt ég viðurkenni, að ekki sé ástæða til, að Menningarsjóður fái fé fram yfir brýnar þarfir á þessum erfiðu tímum. En ég tel þó ekki rétt að höggva tekjur þessar í tvennt, þar sem þær eru svo óvissar. Ætti að vera hægt að afla sér upplýsinga um það, hve miklu Menningarsjóður þarf nauðsynlega á að halda, en ríkissjóður fái það, sem fram yfir er. Hitt myndi gera þeim, sem hafa úthlutun fjárins á hendi, mjög erfitt fyrir. Hinu er ég ekki að amast við, að upphæðir þessar verði takmarkaðar. ég vildi því fá fundarhlé, eða þá að þessir liðir verði nú teknir út, og skal þá ekki standa á mér að stuðla að því, að liðirnir komi inn aftur í því formi, sem full sanngirni krefst. Og að endingu verð ég að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann beri liðina upp hvern í sínu lagi, eins og gert var í Nd.