02.06.1932
Efri deild: 90. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2345 í B-deild Alþingistíðinda. (2693)
258. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Jón Baldvinsson:
Ég sýndi fram á það við l. umr., hve gersamlega óforsvaranlegt væri að ætla nú að kippa tekjunum af tóbakseinkasölunni af verkamannabústöðunum og byggingar- og landnámssjóði og ýmsum fleiri þörfum stofnunum. Það er mjög hætt við, að ef lög þessi verða samþ. en, verði þau framlengd síðar, því að ríkissjóður er vanalega fastheldinn á þá tekjustofna, sem hann hefir einu sinni klófest. — 3. liður er mjög varhugavert ákvæði, sem myndi draga úr bættum húsakynnum bæði í bæjum og sveitum. Þetta ákvæði var sett inn í lögin um tóbakseinkasöluna með samkomulagi Framsóknar- og Alþýðufl., einmitt til að verjast því, að Sjálfstæðisfl. legði niður tóbakseinkasöluna síðar. Með því að verja tekjunum af henni til þarflegra fyrirtækja atti að tryggja það, að andstöðuflokkurinn myndi hika við að leggja tóbakseinkasöluna niður og svipta þar með vinsæl og gagnleg fyrirtæki lögbundnum fjárframlögum. Alþýðufl. telur það því fullkomna brigðmælgi við sig, að Framsókn skuli nú ætla að kippa þessu framlagi burt aftur.
Ég fæ ekki annað séð en að réttmætt sé og sjálfsagt að bera liðina upp hvern í sínu lagi, enda er algengt, að forsetar skipti greinum, og þá er ekki sízt ástæða til þess, þegar um er að ræða breyt. á 8 lögum í einni frvgr. Ég álít skakkt að geyma breyt. til 3. umr., því að það breytir alveg aðstöðu þm., þar sem eigi þarf nema 7 atkv. til að fella niður lið, en 8 atkv. til að setja inn breyt. Þess vegna verð ég fastlega að styðja tilmæli hv. 1. landsk. um, að hæstv. forseti beri upp tölulið 1. gr. hvern í sínu lagi. (JónJ: Það er ekki heimilt eftir þingsköpum). Hæstv. forseta er heimilt að gera það eftir þingsköpum. Hæstv. forseti Nd. gerði það, og ég býst við, að hv. 3. landsk. vilji ekki bera á sinn elskulega flokksbróður, að hann hafi brotið þingsköpin, enda verð ég að álíta, að hæstv. forseti Nd. hafi þarna farið að lögum og þingvenju.
Ég mun svo bíða þar til að loknu fundarhléi eða frestun málsins til að sjá, hvaða brtt. koma fram við frv. til að draga úr niðurfellingu framlagsins til verkamannabústaðanna, sem hv. 1. landsk. minntist a. Það voru nokkuð óákveðin ummæli, sem hann hafði í því sambandi; hann talaði um, að hann vildi láta eitthvert framlag haldast til þeirra, en hefir ekki nefnt neinar tölur. En ég fæ væntanlega tækifæri til að vita þau í fundarhléinu, hvað um er að ræða, og get ég þá séð, áður en brtt. kemur fram, hvort ég tel hana fullnægjandi eða ekki.