03.06.1932
Efri deild: 92. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2359 í B-deild Alþingistíðinda. (2712)
258. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Jón Þorláksson [óyfirl.]:
Af því, sem fram hefir komið til andmæla gegn till. minni um að láta verkamannabústaðina njóta nokkurs af þeim tekjum, sem heim eru ætlaðar í tóbakseinkasölulögunum, hefir einungis komið ein mótbára, frá hv. 3. landsk., sem ég vil gera að umtalsefni. Hv. þm. viðurkennir að vísu, að það myndi vera réttmætt í árferði eins og þessu að verja ef unnt væri, einhverju fé til þess að halda uppi atvinnunni í landinu, en taldi það á móti þessari aðferð, að hér á landi er mjög fátt af því, sem gripið verður til í fjölmennustu kaupstöðum landsins til þess að halda upp atvinnunni an töluverðrar notkunar á erlendu efni. Það má fremur segja, að hægt væri að gera eitthvað slíkt úti um sveitirnar, t. d. vegagerð og ræktunarfyrirtæki. En það er ekki unnt að koma slíkum fyrirtækjum til framkvæmda og bóta fyrir atvinnu manna úr kaupstoðum nema tiltölulega litinn hluta ársins. Slíkt kemur eiginlega ekki að notum nema um fjóra man. ársins, og hinn tímann verða menn aðallega að leita fyrir sér um framkvæmdir, sem geta komið kaupstaðabúum sjálfum að notum, en þær útheimta allar töluvert af erlendu efni. Nú er ekki lakar ástatt hér í Rvík t. d. en þó að það, að helmingur kostnaðarins fer að öllu leyti í innlenda vinnu og að af hinum hlutanum, sem húsbyggjandi verður að greiða fyrir erlent efni, fer dálítill hluti í raun og veru ekki til útlanda, eins og t. d. flutningsgjald með íslenzkum skipum, að því leyti sem hægt er að nota þau, og það er mikið, gjöld til ríkissjóðs og innlendur verzlunarkostnaður. Það er því ekki eins fjarri lagi og maður skyldi halda eftir ummælum hv. 3. landsk. að gera eitthvað til þess að halda uppi atvinnunni á tímum eins og nú standa yfir.
Þá vil ég út af ummælum sama hv. þm. um brtt. mína um Menningarsjóð og út af þeim loflegu orðum, sem hann for um starfsemi hæstv. dómsmrh. á því sviði, taka undir það, sem einn hv. þm., sem hér er staddur í d., kallaði það, að ný væri hv. 3. landsk. að halda húskveðjuna, og þýðir það, að líklega er von á líkræðunni frá honum á morgun. Mér fannst þegar í upphafi óbragð að þeirri hugsjón að binda starfsemi Menningarsjóðs við brot gegn áfengislöggjöfinni, og ég er alveg sömu skoðunar enn. En nú liggur það alls ekki fyrir hér að gera þá breyt. á þessu að tryggja menntastarfseminni í landinu nauðsynlegt fé á annan hatt en gegnum þessa löggjöf. Það er því siður en svo, að ég geti tekið til mín það, sem hv. 3. landsk. var að gefa í skyn, að skoðanir mínar hefðu breytzt hvað þetta snertir frá því að málið var til umr. í þinginu. Að sjálfsögðu viðurkenni ég, að menningar- og menntastarfsemi sé þjóðinni nauðsynleg og að verja beri til hennar af tekjum ríkissjóðs. En ég tel ekki rétt að láta hana hvíla á lögbrotum í landinu, þó ég hinsvegar fallist á, að á meðan henni eru ætlaðar tekjur af þeim, fái hún að halda þeim.