03.06.1932
Efri deild: 92. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2361 í B-deild Alþingistíðinda. (2714)
258. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Ég ætla ekki að fara að svara ýtarlega þeim orðum, sem fallið hafa um réttmæti tekjuöflunar Menningarsjóðsins, en mér finnst það hafa lítið að segja, hvort tekjur fyrir upptækt áfengi og sektir fyrir brot gegn áfengislögunum renna beint til hans eða til ríkissjóðs fyrst og svo aftur úr honum til Menningarsjóðsins. Að farin var þessi leið, þegar lögin um Menningarsjóð voru sett, var sökum þess, að ekki var hægt að fá Alþingi til að veita féð á annan hátt. Menn gengu inn á þessa leið, og þess vegna var hún góð, úr því að málefnið var gott.