04.06.1932
Efri deild: 94. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2367 í B-deild Alþingistíðinda. (2739)
824. mál, tekju- og eignarskattsauki
Jón Baldvinsson:
Ég gerði þá brtt. við 1. gr., að tekjuskattsaukinn skyldi ekki innheimtur af tekjum, sem eru undir 4000 kr. Er þetta sjálfsagt, því að þessi skattur munar litlu af tekjum, sem þar eru undir. Er það líka réttlátt, að viss hluti af tekjum manna sé undanskilinn slíkum skatti. Vænti ég þess, að till. nái samþykki.