04.06.1932
Efri deild: 95. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2368 í B-deild Alþingistíðinda. (2747)
824. mál, tekju- og eignarskattsauki
Forseti (GÓ):
Mér hafa borizt tvær skrifl. brtt., önnur frá hv. fjhn. — og hafa hv. dm. þegar heyrt hana —, hin frá hv. 2. landsk., svo hljóðandi:
„Aftan við 1. gr. bætist: Þó aðeins af skattskyldum tekjum yfir 3500 kr.“
Til þess að brtt. þessar geti komið til umr. og atkv. nú, þarf að veita afbrigði frá þingsköpum.