05.04.1932
Neðri deild: 43. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í B-deild Alþingistíðinda. (28)
1. mál, fjárlög 1933
Haraldur Guðmundsson:
Mér þótti dæmisaga sú, er hæstv. fjmrh. lauk máli sínu með, bæði smekkleg og velviðeigandi, sérstaklega í hans munni. Ég vil taka undir með saklausa barninu, sem sagði, að farið væri að leka úr honum afa, og það allóþyrmilega. Blöð Íhaldsflokksins sum skýrðu svo frá, þegar þessi hæstv. ráðh. tók sæti í ráðuneytinu, að þar væri um að ræða heiðursfélaga í íhaldsflokknum, þá fannst ýmsum vera heldur en ekki farið að leka úr honum afa! Betri sönnun fyrir því, að Framsókn hafi verið að sigla í íhaldsáttina nú síðustu árin, held ég, að verði torfundin. Hæstv. ráðh. segir margar og misjafnar dæmisögur. Það er sízt lastandi, ef þær eru góðar. En ég verð að álíta, að fjmrh. væri þörf fleiri góðra kosta en að hafa sífellt dæmisögur á takteinum, meira og minna biblíulegar.
Þessi hæstv. ráðh. veik að mér persónulega nokkrum orðum. Ég ætla að svara því strax, svo að það gleymist ekki, því að ég vil borga mínar privat skuldir eftir því, sem ég get. Hæstv. ráðh. sagði; að ekki sæti á hv. þm. Seyðf. að vera að lasta verk stj., þar sem hann væri eitt af verkum hennar. Hún hefði gert hann að bankastjóra á Seyðisfirði. Ég vil segja hæstv. ráðh. það strax, til þess að fyrirbyggja allan misskilning, að það hefir engin áhrif á tal mitt um hæstv. stj., þó að hún hefði gert mig að bankastjóra. En það er ekki rétt, að hæstv. stj. hafi veitt mér þetta embætti. Það gerði bankaráð Útvegsbankans, en ekki hæstv. stj. Ég skal svo ekki fjölyrða meira um þennan kafla í ræðu hæstv. ráðh., en er reiðubúinn til þess að taka öllum afleiðingum af dómum mínum um og afstöðu minni til hæstv. stj., hvenær sem er.
Annars segir hæstv. fjmrh. margt fleira spaklega en dæmisögur. Fræg er orðin samlíking hans um kreppuna, sem hann flutti í útvarpinu í vetur, að kreppan væri eins og vindarnir, engir vissu, hvaðan þeir kæmu eða hvert þeir færu. Eftir því mætti ætla, að okkur dauðlegum mönnum væri ekki fært að bæta neitt úr slíku fyrirbrigði, heldur ættum við, og þá hæstv. fjmrh. líka, að setjast með auðmýkt með hendur í skauti og bíða þar til þetta væri liðið hjá. En þannig lítum við jafnaðarmenn ekki á þetta mál. Hæstv. fjmrh. er einmitt til þess að gera ráðstafanir gegn kreppunni, og hann má ekki verða fyrstur til þess að segja, að ekkert sé hægt að gera. Hæstv. ráðh. spann upp langa sögu um það, hvað allir hefðu verið bjartsýnir á sumarþinginu 1931; þá hefðu allir haldið, að nú færi að rofa til, en um leið segir hann frá því, að einmitt þá hafi jafnaðarmenn lagt fyrir þingið 11 millj. kr. frv. um ráðstafanir til þess að mæta kreppuvandræðunum. Hæstv. ráðh. talaði um frv. þetta eins og einhverja fjarstæðu, en sumum flokksbræðrum hans og meðstjórnendum hefir ekki blöskrað að koma talsvert stærri upphæðum í lög en þessari, og það á skömmum tíma. Framsóknarstj. hefir fengið milljónir kr. tekjur umfram áætlanir til þess að ráðstafa. Við jafnaðarmenn höfum síðan 1929 krafizt þess, að ákveðinn hluti af þessum miklu tekjum væri lagður til hliðar, til þess að mæta vandræðum vondu áranna, en hæstv. fjmrh. og flokkur hans börðust á móti því, að þessi leið yrði farin. En hæstv. ráðh. getur ekki neitað því, að hefðu lögin um jöfnunarsjóð, sem jafnaðarmenn báru fram á þinginu 1929, verið samþ. þá, hefðu um síðustu áramót verið til 31/2 millj. kr. til þess að mæta atvinnuleysinu.
Hæstv. ráðh. talaði um óframkvæmanlega hluti og taldi þar með öflun 11 millj. kr. á tveim árum til þess að mæta kreppunni. Ég held, að slíkt fari talsvert eftir því, hvað mikið kapp er lagt á það. Ég held að ég verði að nota nokkrar mínútur, til þess að sýna fram á, að þetta var ekki eins óframkvæmanlegt og hæstv. ráðh. heldur. Í fyrsta lagi var gert ráð fyrir, að árið 1931 hækkaði tekjuskatturinn um 100% og eignarskattur um 200%. Hæstv. ráðh. hefir lýst því yfir, að tekjuskatturinn af atvinnurekstri hafi enginn orðið á þessu ári, af því að atvinnufyrirtækin hafi engan arð gefið. Hann talaði ennfremur varlega utan að því, að hann hefði sjálfur verið að hugsa um að hækka þennan skatt, þótt ekkert hafi nú orðið af því, að hann hafi gert till. í þá átt.
Þó að það væri rétt hjá hæstv-. ráðh., að atvinnufyrirtækin hefðu ekki borið arð 1931, þá er það þó víst, að miklar eignir eru til hér á landi, og einnig fjöldi hálaunamanna, sem gætu auðveldlega borgað tvöfaldan skatt af tekjum sínum. Og tekjurnar væru ólíkt betur fengnar á þennan hátt en að kúga þær af fátæklingum með tolli á toll ofan.
Af fleiri atriðum, sem við bentum á sem hentugar leiðir til fjáröflunar, má nefna stóríbúðaskatt og húsaleiguskatt. Nú hafa fylgismenn hæstv. ráðh. tekið þessar till. upp, en mismunurinn frá uppástungu okkar er þó alltilfinnanlegur, þar sem nú er ætlazt til þess, að þessir skattar gangi beint til almennra útgjalda ríkissjóðs, en ekki til ráðstafana gegn kreppunni. Þá lögðum við til, að skemmtanaskatturinn yrði látinn ganga til kreppuráðstafana. Ekki var það óframkvæmanlegt. Enn var lagt til, að tekjur tóbakseinkasölunnar rynnu til kreppuráðstafana og 200% yrðu lögð á áfengistollinn, því að flestir, sem hafa ráð á að fá sér oft í staupinu, geta vafalaust séð af talsverðu í ríkissjóðinn, og enginn skaði væri, þótt eitthvað drægi úr áfengiskaupum og drykkjuskap.
Samkv. frv. okkar áttu þessir nýju skattar að nema nú á 2 árum 5 millj. 300 þús. kr., og ég hefi engan mann fyrir hitt, sem hefir talið þetta óvarlega áætlað. —Ennfremur var bent á þá leið, að ríkisstj. legði út 3 millj. kr. innlent lotteríislán. Þó að það sé rétt, að ekki sé sem efnilegast nú á þessum síðustu og verstu tímum að bjóða út stór innanlandslán, þá eru miklar líkur til, að einmitt slíkt lán hefði orðið auðfengið. Þetta hefir verið gert og gefizt ágætlega víða erlendis. Þessi leið er því alls ekki fráleit. Það virðist a. m. k. ekki síður skynsamlegt að reyna ýmislegt slíkt og hér hefir verið minnzt á en að knýja stöðugt á dyr enskra stórbanka.
Við jafnaðarmenn lítum svo á, að það helzta, sem gert verði gegn kreppunni, sé að varna því, að bændur og aðrir smærri atvinnurekendur flosni upp, og það verður hið opinbera að gera. Ennfremur að stuðla að því, að vinna fólks verði ekki gerð verðlaus, og auka opinberar framkvæmdir að miklum mun, enda eru með því síðasttalda slegnar tvær flugur í einu höggi, hagur fólksins bættur og verklegum framkvæmdum hrundið í framkvæmd. En þetta á ekki sem bezt heima í fjarmálaspeki hæstv. ráðh., sem heldur, að ráðið við kreppunni sé það, að allt vöruverð hækki, en kaupgjaldið lækki.