21.03.1932
Neðri deild: 34. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í C-deild Alþingistíðinda. (2832)
30. mál, vigt á síld
Vilmundur Jónsson:
Þegar um það er að ræða að leyfa frjálsa samninga um það, hvort bræðslusíld skuli vegin eða mæld í hverju einstöku tilfelli, er þess að gæta, að fjöldi manna, sem þar á mikið undir, stendur mjög illa að vígi að gæta réttar síns. Það eru sjómennirnir, sem taka premiu af aflanum. Þeir koma ekki nálægt þeim samningum, sem útgerðarmennirnir — skipaeigendur — gera við bræðsluverksmiðjurnar. Ef rétt þeirra á að tryggja, verða að gilda hér um fastar reglur og þær aðferðir við að hafa, sem reynsla er fyrir, að tryggilegastar eru.
Ég ítreka það, að rök þau, sem áttu að felast í vottorði því, sem hv. þm. G.-K. las upp áðan, eru ekki svo veigamikil sem hann vill vera láta. Vottorðið er frá manni, sem hefir aldrei keypt síld, aldrei selt síld, aldrei veitt síld, e. t. v. aldrei séð síld og þekkir þess vegna ekkert til þessara mála. Þennan mann vill hv. þm. G.-K. þó gera að sérstöku „autoriteti“ í þessu máli. Og þó hefir hv. þm. sjálfur sagt um þennan sama mann, að hann hafi látið smíða og síðan löggilt síldarmæliker, sem hefði reynzt vitlaust og jafnvel komið öllum þessum ófögnuði af stað. Þennan mann, sem að dómi hv. þm. getur ekki einu sinni löggilt eitt síldarmál, vill hann nú gera að sérstöku „autoriteti“ í öllu hér að lútandi.
Ræða hv. 4. þm. Reykv. var mjög skemmtileg — og lík honum sjálfum. Hann sagði, að ekki væri hægt að bera saman mál og vigt. En það er nú einmitt það, sem hefir viðgengizt, að vigtareiningu síldar hefir átt að finna með mælingu. Ef þetta er nú ómögulegt í þessu tilfelli ... og því held ég fram —, þá hlýtur það að vera óhjákvæmilegt að nota aðeins aðra aðferðina, og þá auðvitað þá aðferðina, sem öruggari er, flestar verksmiðjur hafa þegar tekið upp og enginn kvartar undan.
Það var einnig mjög skemmtileg röksemd og honum samboðin, er hann sagði í mótmælaskyni gegn þessu frv., að ekki væri hægt að smíða mál, sem tæki visst mal. Þessháttar mæliáhöld vill hv. þm. engu að síður láta nota — mæliáhöld, sem ómögulegt er að búa til ! Og hann óskaði endilega eftir því, að þau lög væru látin gilda áfram, sem heimiluðu slíka vitleysu.
Verði leyft að mæla síldina framvegis, þá er það vissulega ekki almenningur, sem hefir hag af því, heldur ekki síldarbræðsluverksmiðjur yfirleitt, heldur aðeins Kveldúlfur og þá fyrst og fremst sem syndakvittun fyrir það, sem skeð hefir undanfarin ár á Hesteyri. Hinar verksmiðjurnar hafa nú keypt og notað vogir. Þar hefir ekki orðið vart við neina óánægju, hvorki frá kaupendum né seljendum, og er því ekkert útlit fyrir, að þar verði hætt við vogirnar. Það verður því að gera þá kröfu, að vogir séu einnig notaðar á Hesteyri eins og annarsstaðar, ef eitt á yfir alla að ganga. Löggiltur vigtarmaður á að vera við hverja vog. Vogirnar verða auðvitað að vera löggiltar líka, og loks verður að skoða þær á hverju ári, hvort þær hafa ekki skekkzt. Með þessu einu móti er tryggt rétt mál á síldinni. Það væri enginn á móti því að mæla síldina, ef hún væri mæld rétt. En reynslan hefir sýnt, hversu rétt sú mæling er og hverjum hneykslum hún kann að valda.