19.05.1932
Neðri deild: 78. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 700 í B-deild Alþingistíðinda. (284)
3. mál, landsreikningar 1930
Frsm. meiri hl. (Halldór Stefánsson):
Mér þykir ekki ástæða til þess að jafnkita um einstök atriði, sem ágreiningur hefir verið gerður um nú við síðustu umferð umr. um þetta mál. Það er vitanlega alltaf hægt að segja eitthvað til að vefja atriðunum inn í umr. og lengja þær, ef menn leggja stund á það. Það er rétt hjá hv. frsm. minni hl., að með frv. er verið að fara fram á einskonar allsherjarkvittun fyrir ráðsmennsku stj. þetta ár, eins og jafnan áður með slíkum frv. Hv. frsm. minni hl. vill ekki gefa þessa kvittun. Ég vil benda honum á, að þær heimildir, sem til skorti, voru veittar með samþykkt fjáraukalaganna hér í hv. d. í gær, svo um heimildina þýðir ekki að deila hér eftir, og þá ekki heldur hægt að synja um samþykkt LR.
Hv. 2. þm. Skagf. taldi, að ég mundi nauðugur gefa kvittun með þessum LR., en hann veit ekkert um minn hug í því efni. Hann er ekki sá, sem getur rannsakað hjörtun og nýrun, og fer sá oft villt, sem geta skal. (MG: Vill þá ekki hv. þm. neita minni getgátu?).
Þá vildi hv. þm. telja prentvillu í 40. aths. a.-lið. Ég veit ekki, hvað rétt er í því, en þó hygg ég, að hv. þm. hefði aldrei gert það veður út af þessari greiðslu, sem hann gerði, eða hún gerð að blaðamáli sem stórt atriði, ef þetta er prentvilla, og hann aldrei álitið upphæðina 1116 kr., heldur 116 kr. eins og hún er í LR.
Þá er orðið upplýst og viðurkennt um greiðsluna, sem talin var vegna Markúsar Jónssonar á Svartagili, og að aths. vegna hennar er á misskilningi reist.
Það, sem aðallega kom mér til að taka til máls, var véfenging hv. 2. þm. Skagf. á því, sem ég hafði sagt um samanburð tollteknanna árin 1925–27 og 1928–30. Ég held, að hann hafi ef til vill ekki gætt að því, að ég bar þar saman tvo tímabil, en ekki tvö ár. Breytingar urðu á þessum tímabilum á aðeins þremur tollstofnum; allir aðrir tollstofnar voru óbreyttir. Verðtollur gekk í gildi 1. apríl 1924 og gilti með ýmsum breyt. yfir bæði tímabilin. Fyrst var hann 20% á öllum verðtollsvörum og var þá líklega hæstur, sem hann hefir verið, og gaf mjög miklar tekjur. Á tímabilinu frá 1. júní 1925 til. 1. marz 1926 voru verðtollsvörur flokkaðar í 3 flokka, 30%, 20% og 10%. Gaf hann þá einnig miklar tekjur, en ég skal ekki fullyrða, hvort hann var þá raunverulega hærri eða lægri en áður. Svo var tollurinn lækkaður 1. marz 1926. Eru verðtollsvörur þá líka greindar í 3 flokka, 20%, 15% og 5%, og gilti það til 1. jan. 1927, en þá var tollinum breytt, flokkar aðeins tveir, 20% og 10%, og gilti það út fyrra tímabilið. Samhliða þessum breyt. á tollunum var alltaf verið að fella ýmsar vöruteg. alveg undan tollinum. Síðara tímabilið, 1928–30, byrjaði með sama verðtollsstofni og fyrra tímabilið endaði, en svo var hann hækkaður upp í 30% og 15% 1928, en naði alls ekki því hámarki, sem var fyrra tímabilið, til 1. marz 1926. En auk þess voru engar af þeim vörutegundum, sem felldar höfðu verið undan tollinum, gerðar aftur tollskyldar, svo það er áreiðanlegt, að tollurinn var til uppjafnaðar allmiklu hærri á fyrra tímabilinu en hinu síðara.
Þá kem ég að vörutollinum, sem er annar sá tollur, er breytingum tók. Samhliða því, að verðtollur var settur á 1924, var ákveðinn 25% gengisviðauki á vörutollinn og stóð í 2 ár, en var þá felldur niður. Kolatollur var settur 1. jan. 1924 og stóð til 31. des. 1926, eða í 3 ár, 3. kr. á tonnið, og salttollur kr. 1,50 á tonnið, en voru lækkaðir 1927 í 1 kr. á tonnið á hvorri tegund. Loks var í lok fyrra tímabilsins, frá 1. júli 1926, vörutollur af korni og tunnum alveg felldur niður. Á síðara tímabilinu var aldrei neinn gengisviðauki á vörutolli, og ekki tekinn upp korn- og tunnutollur. Kolatollurinn hækkaði að vísu aftur, ekki í 3 kr. eins og hann áður var, heldur aðeins í 2 kr., svo hann nam ekki nema 2/3 af því, sem hann var meiri hluta fyrra tímabilsins, og salttollurinn var alls ekkert hækkaður og nam því ekki heldur nema 2/3 hlutum af því, sem hann var fyrri hluta hins fyrra tímabils. Af þessu er auðséð, að vörutollurinn hefir í heild orðið miklum mun lægri á seinna tímabilinu en hinu fyrra.
Þá er það hvað tollalögin snertir athugunarvert, að gengisviðauki á þeim var breytilegur. Allt fyrra tímabilið var gengisviðauki innheimtur af öllum tollvörum, en á síðara tímabilinu var hann frá árslokum 1928 felldur niður á kaffi og sykri, og nemur sú niðurfelling hundruðum þúsunda króna á ári hverju.
Ég hefi nú stuttlega rakið breytingarnar á þeim þremur tollstofnum ríkisins: verðtolli, vörutolli og almennum tolli, sem nokkrum breyt. voru báðir á þessum tímabilum, og niðurstaðan er sú, að í heildinni hafa þessir tekjustofnar verið mun lægri síðara tímabilið en hið fyrra.