07.03.1932
Neðri deild: 22. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í C-deild Alþingistíðinda. (2849)
87. mál, innflutningur á kartöflum o. fl.
Jón Auðunn Jónsson:
Ég vil segja það sama og hv. 3. þm. Reykv., að mér lízt ekki á þetta frv. Það, sem vakir fyrir n., er það, að tryggja ísl. kartöflum innanlandsmarkaðinn. En nú er það svo, að ísl. kartöflur seljast tregðulaust. Það, sem vantar, er aukin framleiðsla. En það er ekki að búast við því, að neyzlan aukist, ef verðið hækkar. Ég hygg, að kornvörur séu nú raunverulega ódýrari en kartöflur, og ég hefi þar fyrir mér ummæli manns, sem er skynbær á þau efni.
Samkv. 2. gr. frv. hefir Búnaðarfélagið aðstöðu til þess að hindra það, að banninu verði aflétt. Atvmrh. leggur bannið á, en honum er ekki heimilt að létta því af nema samkv. meðmælum Búnaðarfélagsins. (PO: Misskilningur). Þetta stendur í gr.
Þann tíma árs, sem innflutningur er leyfður, er fyrirsjáanlegt, að þeir, sem verzla með kartöflur, muni hrúga að sér birgðum, e. t. v. þjóðarheildinni til stórskaða. Kartöflur skemmast fljótlega, og þegar kaupmenn verða hræddir um að geta ekki varið þær skemmdum, þá lækka þeir verið, heldur en að eyðileggja þær í höndum sér og spilla svo sölunni á ísl. kartöflum.
Ég held, að frv. gangi í öfuga átt. Það er rétt og sjálfsagt að reyna að auka framleiðsluna og gera hana ódýrari, svo að við verðum samkeppnisfærir. Það liggur beinna við að styrkja framleiðendur, veita þeim einhverja þóknun fyrir hverja þá tunnu, sem þeir afhenda til sölu.
Í 5. gr. frv. er talað um mat á kartöflum. En eru nú alstaðar til menn, sem séu hæfir til að meta kartöflur? Hvernig geymast svo ekki sumar tegundir? Þar, sem ég er kunnugastur, var um tíma ræktað mikið af svokölluðum „Eyvindi“; þær voru fljótræktaðar og gáfu mikla uppskeru. En þær geymdust svo illa, að menn biðu stórskaða á ræktun þeirra. Ég er hræddur um, að ef verð á kartöflum verður ekki kontrollerað með framboði erl. framleiðslu, þá veði mest af heim tegundum ræktað, er mesta uppskeruna gefur, án þess að taka tillit til, hvernig þær geymist.