07.03.1932
Neðri deild: 22. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í C-deild Alþingistíðinda. (2852)
87. mál, innflutningur á kartöflum o. fl.
Sveinn Ólafsson:
Það hefir komið fram í þessum umr., eins og oftar, að sínum augum lítur hver á silfrið. Einn af hv. þdm. þótti mér samt taka allt of ómjúklega á þessu frumsmíði landbn. Hv. 4. þm. Reykv. gerði hv. n. blátt áfram þær getsakir, að hún flytti þetta frv. til þess að gera viðskiptin óhagstæðari kaupendum þessarar vöru. Mér finnst varla sæma að kasta slíkum getsökum fram, en annars mun hv. n. svara sjálf þessum áburði. Ég lít á frv. eins og sjálfsagða og réttmæta tilraun til þess að efla ræktun og sölu á þessum innlendu afurðum. Vér eigum óhikað að vinna að því, að gersamlega verði óþarft að flytja jarðepli inn í landið. Það er ekkert trúaratriði fyrir mér, að þetta takist, það er staðreynd, að hér er tiltölulega auðvelt að framleiða öll þau jarðepli, sem landsbúar þurfa. Auðvitað getur farið svo í óáran, að uppskera bregðist, en í meðalári hverju mun þetta ekki vera erfitt.
Það er von mín, að þessu marki verði náð á fám árum, og frv. Þetta, sem hér liggur fyrir, stefnir því efunarlaust í rétta átt. Ég er algerlega með stefnu frv., en ekki fyllilega ánægður með einstök ákvæði þess, og vildi gjarnan víkja þar ýmsu til. Annars ætla ég ekki að lengja þessar umr. mikið, enda hefi ég lítið hugsað málið að þessu. (ÓTh: Alveg rétt! Óþarfi að taka það fram!). Þó vil ég benda á það, að ég áliti rétt að binda ákvæði 5. gr. frv., um hámarksverð jarðepla, fastari skilyrðum en þar er gert. Líka vildi ég benda hv. landbn. á það, að mér finnst stakasti óþarfi að vera að lögfesta útlenda nafnið „kartöflur“ með frv. þessu, þar sem við eigum ágætt, alinnlent nafn, sem þar að auki er orðið talsvert fast í málinu, en það er nafnið jarðepli.
Ég ætla þá að láta þetta nægja í bili og vonast til þess, að mál þetta fái fljóta og góða afgreiðslu.