07.03.1932
Neðri deild: 22. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í C-deild Alþingistíðinda. (2855)

87. mál, innflutningur á kartöflum o. fl.

Jón Auðunn Jónsson:

Ég verð að taka undir það með hv. 1. þm. Rang., að hv. frsm. sannar okkur, að engin ástæða er til að gera þessa ráðstöfun til að greiða fyrir sölu á innlendum kartöflum. Það er óhætt að auka framleiðsluna, því að markaðurinn er nógur. Við, sem kaupum kartöflur, greiðum með glöðu geði 2–4 kr. meira fyrir hverja tunnu af íslenzkum kartöflum en erlendum. Það mun jafnaðarlega vera svo, að innlenda framleiðslan er seld allt öðru og lægra verði út úr landinu en hún er seld á innl. markaði. Ég hefi t. d. verið að spyrja um verð á spaðsöltuðu saltkjöti. Seljendur vilja fá 130 kr. Á sama tíma er tunnan seld út úr landinu á 50–60 kr. af stórhöggnu kjöti eða sem svarar 80 kr. spaðsaltað. Það geta ekki blómgvazt atvinnuvegir, sem reistir eru á slíku fyrirkomulagi. Það er hægt að pína menn eitt og eitt ár, en það er ekki hægt til lengdar. Það, sem gert er í öðrum löndum til verndar innlendri framleiðslu, er að setja tolla, svo að ódýrar erlendar vörur séu ekki seldar „dumping“verði og innlend vara útilokuð frá sölu. Öll framleiðsla kartaflna er seld þau verði og eftirspurn eftir meiru en framleitt er. Þess vegna er bann við innflutningi ekki einasta óþarft, heldur líka skaðlegt.

Hv. 1. þm. Skagf. minntist á Skipaútgerð ríkisins í sambandi við þetta mál. Ég skal lofa honum því að greiða atkv. með honum með því að láta ríkissjóð styrkja innlenda kartöfluverzlun með svo sem 50 þús. kr. á ári, ef hann vill aftur á móti styðja að því, að bætt verði skipulag ríkisútgerðarinnar, sem hann er svo hrifinn af, þannig að spara ríkissjóði kostnað við hana sem svarar tvöfaldri þeirri upphæð. Ég spáði því, þegar Súðin var keypt um árið, að tap ríkisins á strandferðunum mundi tvöfaldast upp í 350 þús. kr., og reynslan hefir sýnt, að það var ekki ofmælt. Á síðasta ári hefir halli á útgerð ríkisskipanna orðið 472 þús. kr., og það er auðséð, að eitthvað þarf að gera til þess, að sú upphæð verði ekki miklu hærri á þessu ári. Annars á ég erfitt með að skilja þá menn, sem ótilkvaddir standa upp hér í d. til þess að lýsa yfir velþóknun sinni á þessari starfsemi ríkisins. Ég get ekki skilið, að margir vilji verða til þess að taka þátt í þessari hrifningu hv. þm., því að það virðist öllu heldur vera hryggðarefni, hver reynslan hefir orðið í þessum efnum á síðari árum. —Annars er það augljóst, að kartöfluframleiðslan getur ekki aukizt nema verðið hækki, eða að aukinn verði opinber styrkur til hennar fram yfir það, sem nú er samkv. jarðræktarlögunum. En ef þess er kostur að spara útgjöld ríkissjóðs af skipaútgerðinni, þá skal ég samþykkja það að veita fé til styrktar kartöfluræktuninni. Kartöflurnar er afarnauðsynleg vara, og einmitt sú vara, sem fátækara fólkið notar meira af en hinir efnaðri, vegna þess, að þeir fátækari hafa minni aðstöðu til að bæta sitt mataræði með dýrari efnum. Þess vegna vil ég leggja mikla áherzlu á, að komið sé í veg fyrir hækkandi verð á þessari vörutegund, sem við þurfum einmitt að starfa að vaxandi neyzlu á. En reynslan mun verða alveg öfug í þessu efni, ef innflutningsbann kemst á; um það þýðir ekki að deila. Ég skal ekki deila við hv. frsm. um framkvæmd innflutningsbannsins. Í niðurlagi 2. gr. frv. er ráðh. heimilað að létta banni af fyrr en það er útrunnið, en þó aðeins með samþykki og að fengnum till. Búnaðarfélags Íslands. Ég fæ ekki séð, að hægt væri fyrir ráðh. að létta banninu af nema með samþykki Búnaðarfélagsins. Þó ráðh. bærust áskoranir frá bæjar- og sveitarfélögum víðsvegar að um að létta banninu af, þá getur Búnaðarfélagið beinlínis meinað honum að taka þær til greina. Ég fer eftir því, sem skrifað stendur. Treystir hv. frsm. sér að sýna fram á, að þetta sé rangt?