17.03.1932
Neðri deild: 31. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í C-deild Alþingistíðinda. (2892)
87. mál, innflutningur á kartöflum o. fl.
Jóhann Jósefsson:
Ég hefi sökum fjarveru og veikinda ekki fylgzt með umr. og gangi þessa máls hér í hv. d. Mér virðist það á grg. hv. landbn., að hún haldi því ekki fram, að hér á landi sé framleiddur nægilegur forði handa landsmönnum af þessari vöru. Hún segir aðeins, að hér á landi séu nægileg skilyrði til þess að framleiða þessa voru eftir þörfum landsmanna, og að það geti ekki talizt vansalaust, hve skammt við séum komnir í þeim efnum. Með því er ekki sagt, að við getum, eins og stendur, komizt af án innflutnings á þessari vöru.
Mér er sagt, að það sé upplýst, að það vanti um 18 þús. tunnur árlega til þess, að innlenda framleiðslan fullnægi þörf landsmanna, og er það ekki smáræðis vörumagn. Það lætur að vísu vel í eyrum að styðja innlenda framleiðslu, en það er mörgum ljóst, ef þetta frv. verður að lögum, að þau verða til stórkostlegra óþæginda fyrir íbúa kaupstaða og þá, er við sjávarsíðuna búa, svo að ég ekki noti sterkari orð. Fyrir sveitirnar er þetta ekki tilfinnanlegt, því að þær þurfa ekki að nota útlendar kartöflur, en almenningur í kaupstöðunum verður fyrir stórtjóni af þessu frv., ef að lögum verður.
Í Vestmannaeyjum er allmikil kartöfluræktun, en þessi vara geymist þar svo illa, að þegar liður á veturinn eru kartöflurnar orðnar svo vatnsósa og ógeðslegar, að fólkinu óar við að leggja sér þær til munns, og margir hafa orð á því, að þær muni þá ekki vera orðin allskostar holl fæða. Hitt er vitað og viðurkennt, að kartöflur eru fæða, sem hvert einasta heimili þarf að nota á hverjum degi og oft á dag, og ennfremur, að þær eru hin hollasta fæða. Það er því ákaflega varhugavert fyrir Alþingi að bæta þeim búsifjum ofan á aðra erfiðleika almennings nú á dögum að takmarka svo mjög þessa fæðutegund, en það er gert með þessu frv., ef það nær fram að ganga.
Það virðist vera miklu fremur skylda löggjafarvaldsins að stuðla að aukinni neyzlu á kartöflum og grænmeti með því að tryggja það, að þær vörur séu alstaðar fáanlegar með sem vægustu verði; svo að hver sá, er ráð hefir á að veita sér brýnustu lífsnauðsynjar, geti veitt sér grænmeti í sem ríkustum mæli. Þessi skoðun mín er ekki einstæð. Ég geri ráð fyrir, að læknar almennt styðji hana og haldi því fram, að grænmetið er bráðnauðsynlegt, þó að Íslendingar hafi öldum saman því nær farið þess á mis.
Ég fer ekki út í það að minnast á einstakar brtt. frv., því að ég tel þær allar aukaatriði, af því að ég tel, að það geti ekki komið til mála að banna innflutning á þessari vöru. Meðmælendur frv. munu segja, að séð sé fyrir því, að alltaf verði nægur forði fyrir hendi á hverjum stað, þar sem stj. sé falið eftir till. Búnaðarfél. Ísl. að upphefja bann, þegar þörf gerist. En ég vil benda á það, að innflytjendur vilja jafnan kaupa inn lítið í einu, til þess að hafa alltaf nýjar kartöflur. Menn eru því ófúsir á að flytja inn í einu birgðir til margra mánaða. Og þó að gert sé ráð fyrir því, að banni sé létt, þegar birgðirnar eru brotnar, þá er Búnaðarfél. að sjálfsögðu skylt að haga sínum till. eftir þeim skýrslum, er því berast frá framleiðendum. Og það má láta sér detta í hug, að þær verði glæsilegri á pappírnum heldur en í reyndinni, þegar fram á veturinn kemur. Er þá við því að búast, að Búnaðarfélagið verði tregt til að veita innflutningsleyfi, jafnvel þó að þörfin kunni að vera brýn. Ég tel það á hinn bóginn vist, að þau héruð, sem framleiða þessa vöru, eigi tryggan markað fyrir hana, þó að hvorki sé beitt verndartollum né banni, og þó að það sé einsætt, að þeim verði mikill styrkur að þessu frv., þá hefir það slíka ókosti í för með sér fyrir aðra, að þeir setja kostina algerlega í skugga.
Ég skal svo ekki lengja umr. frekar um þetta mál. Ég taldi mér rétt, fyrir það hve vel ég þekki þörf kaupstaðabúanna fyrir þessa vöru, að sýna fram á það, hve mikið tjón þetta frv. mun valda þessu fólki, og vildi gjarnan bæta mótmælum mínum gegn frv. við mótmæli annara hv. þdm., sem hafa viljað forða alþýðu manna í kaupstöðum og sjávarþorpum frá þeim stórskaða, er þetta frv. mun valda, ef það nær samþykki hv. Alþingis.