17.03.1932
Neðri deild: 31. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í C-deild Alþingistíðinda. (2906)

87. mál, innflutningur á kartöflum o. fl.

Sveinbjörn Högnason:

Ég mótmæli því, að málið sé tekið af dagskrá. Ég held, að hv. þdm. séu búnir að taka afstöðu til þess, og hvað hinar skrifl. brtt. snertir, þá eru þær ekki svo margbrotnar, að þm. geti ekki glöggvað sig á þeim.