19.03.1932
Neðri deild: 33. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í C-deild Alþingistíðinda. (2923)

87. mál, innflutningur á kartöflum o. fl.

Haraldur Guðmundsson:

Ég vil gera hæstv. forseta kost á því, að ég falli frá orðinu og taki ekki til máls nú, ef hann vill verða við ósk minni um að fresta atkvgr. um frv. þangað til fleiri þdm. eru á fundi, þar sem nú vantar svo marga í d.