15.03.1932
Neðri deild: 29. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í C-deild Alþingistíðinda. (2935)
128. mál, verðtollur af tóbaksvörum
Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég hefi óskað þess, að hv. fjhn. flytti þetta frv., og hefir meiri hl. hennar orðið við þeim tilmælum. Í grg. frv. er gert ráð fyrir, að þessi verðtollur gefi um 200 þús. kr. umfram það, sem nú er, í ríkissjóð. Þó að gert sé áð fyrir, að innflutningur tóbaks minnki um ca. 25% frá því, sem nú er, vegna kreppunnar, ætti verðtollurinn samt að gefa 200 þús. kr. Engum getur blandazt hugur um það, að tóbakið sé hentugur tekjustofn og að heppilegt muni á þessum tímum að auka tollinn á því, enda hefir það ráð verið tekið í mörgum löndum. Ég hygg, að þeir, sem vilja vinna að lagfæringu tollalöggjafarinnar, telji réttlátt, að tollur sé miðaður við innkaupsverð tóbaksvaranna, en ekki eingöngu þunga eins og nú er. Ég vænti, að hv. þd. taki þessu frv. vel.