15.03.1932
Neðri deild: 29. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í C-deild Alþingistíðinda. (2938)

128. mál, verðtollur af tóbaksvörum

Héðinn Valdimarsson:

Út af því, sem hæstv. fjmrh. sagði síðast, þá kannast ég ekki við, að við jafnaðarmenn séum í tengslum við nokkra aðra flokka í þinginu. Það hefir sýnt sig við atkvgr. Hér í þinginu, að það er Sjálfstæðisfl. eða íhaldsflokkurinn, sem fylgir stj. að málum, þegar hún þarf á að halda, en Alþýðuflokkurinn er í andstöðu við báða borgaraflokkana, eins og vant er, þó að í einstökum málum geti endrum og eins leiðir saman legið.

Ég þarf ekki að skýra það nánar en ég gerði í minni fyrri ræðu, að því hærri tollar, sem lagðir eru á tóbakið, þess minni arður verður af einkasölunni. Hæstv. fjmrh. ætlast til þess, að verðálagning vegna viðbótartollsins komi aðeins niður á þeim tóbakstegundum, sem þau telur, að geti fremur borið hana, án þess að salan minnki eða arðurinn af einkasölunni. En á síðasta þingi skildu allir hátt. Það fullvel, að ætlazt var til, að hagnaður einkasölunnar yrði á engan hatt snertur, heldur rynni hann óskiptur til byggingarsjóðanna, svo að þetta yfirklór hæstv. fjmrh. er síðari tíma uppfynding.

Ég gat ekkert um það áðan, að framsóknarstj. hefði með þessu háttalagi svikið sína eigin flokksmenn eða gengið á móti sínum Hugsjónum, enda voru skilyrðin um það, hvernig varið yrði arðinum af einkasölunni, bæði til verkamannabústaða og byggingar- og landnámssjóðs, sett af okkar hálfu, en ekki Framsóknarfl. Hitt virðist óþarft að taka fram nú, af því að það hefir svo oft verið gert, hvernig Framsóknarfl. snýst öfugur gegn sínum eigin hugsjónum og málum, sem hann hefir áður verið fylgjandi. En þó bjóst ég ekki við því, að Framsóknarfl. mundi í heyranda hljóði ganga frá samkomulagi, sem gert var á síðasta þingi, þegar í byrjun næsta þings og svíkja gerða samninga. Dýpra og dýpra sökkva forráðamenn þess flokks. Það gleður mig þó, að hæstv. fjmrh. getur fallizt á, að þessi tollhækkun á tóbakinu gildi ekki lengur en til ársloka 1933, og virðist það þó bera vott um, að einhverjar síðustu leifar pólitískrar sómatilfinningar hafi gert vart við sig hjá honum.