30.03.1932
Efri deild: 38. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í C-deild Alþingistíðinda. (2960)

128. mál, verðtollur af tóbaksvörum

Jakob Möller:

Ég er viss um, að ég sagði það svo skýrt, að ef hæstv. ráðh. hefði heyrt það, þá hlyti hann líka að hafa skilið það, að það væri aðeins sú löglega sala, sem minnkaði. En ég sé ekki, að neitt sé við það unnið, að löglega salan verði minni, en hin ólöglega aukist. Að því er enginn hagur, þar sem tóbaksnautnin minnkar ekki.

Hæstv. fjmrh. sagði, að það væru hagsmunir fárra manna, að tóbakseinkasalan væri lögð niður, og þeim væri haldið hér fram. En það eru einmitt hagsmunir ríkissjóðs, að hún verði lögð niður. Og það byggist á þeirri reynslu, að tekjur ríkissjóðs verða meiri af frjálsri sölu en af einkasölu. Strax og einkasalan tók til starfa varð að hækka tóbakið, svo einhver von væri til, að einkasalan bæri sig eða skilaði einhverjum arði. Þetta er nú sú fyrsta reynsla. Önnur eða næsta reynslan hygg ég að verði það, að arður ríkissjóðs af tóbakinu minnki.

Ég var ekki alveg viss um, að hæstv. ráðh. hafi heyrt orð mín áðan, svo ég vildi endurtaka þau, svo það væri þó alveg víst, að hann heyrði þau.