30.03.1932
Efri deild: 38. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í C-deild Alþingistíðinda. (2965)
128. mál, verðtollur af tóbaksvörum
Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég ætla að missa þessa hv. þm. báða út úr höndunum á mér. Þeir segja, að löglegur innflutningur á tóbaki verði minni með einkasölufyrirkomulaginu, en neyzlan minnki þó ekki. Ég hefi nú engar skýrslur um smyglun og hefi ekki rekizt á neitt slíkt, hvorki þegar einkasalan var hér áður né nú, og hefi enga eigin reynslu og veit ekki heldur um annara í því efni. Ég get því ekki tekið mark á þessu tali þeirra, þar sem þeir færa engin sennileg rök fyrir því. Ef þeir byggja skoðun sína á því, að meira sé smyglað, þá veit ég ekki, af hverju það ætti að vera, þar sem verzlunin með tóbak er öllum frjáls.
Verðhækkun sú, sem varð um síðustu áramót, stafar af því, að verðið á hrátóbaki hækkaði, einkum vegna hins háa gengis í Ameríku og Hollandi, og í öðru lagi af því, að um síðustu áramót hafði ég í undirbúningi þetta frv., og var þá álagningin sett með það fyrir augum, að tóbaksvörur, t. d. sígarettur, þyrftu ekki að hækka, þótt það yrði að lögum. Ég hafði gert ráð fyrir, að eitthvað af tekjum tóbakseinkasölunnar fengi að renna í ríkissjóð, en nú virðist sem það muni ekki verða leyft af ýmsum annarlegum ástæðum.
Ég trúi nú ekki að öllu leyti á tölur, þótt góðar séu með. Áður stóð tóbakseinkasalan á erfiðum tímum og þá var líka tóbaksnotkun minni en hún hefir orðið síðan. Nú eru það líka hinir erfiðu tímar, sem draga úr verzluninni, einkum á þann hatt, að hinar dýrustu tóbakstegundir eru nú miklu minna keyptar en áður, meðan efnahagurinn var betri.