23.05.1932
Neðri deild: 81. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (299)

3. mál, landsreikningar 1930

Jónas Þorbergsson:

Þegar ég stóð upp til þess að tala um þetta mál, þá var það einungis til þess að gera aths. við ummæli hv. 2. þm. Skagf., af því mér fannst hann ganga framhjá rökum hæstv. dómsmrh. Ég hefi ekkert farið út í þennan svonefnda herkostnað, enda er hann aukaatriði.

Ég ætla heldur ekki að gera hv. 4. þm. Reykv. til eftirlætis að taka upp umr. um þetta mál frekar en orðið er. Málið er þrautrætt og ekki nauðsyn að halda þeim umr. áfram. Þó að í heilabúi hv. 4. þm. Reykv. vefjist hin sterku rök þessa máls, þá vefst málið ekki fyrir þjóðinni. Þetta hafa læknarnir sjálfir skilið og játað í sinn hóp, að þeir hafi gersamlega taþað þessu máli.

Þetta er það, sem máli skipti, og ég hirði ekki um að ræða jafnþrautrætt atriði, sem vitað er um, að kemur aldrei aftur, því að sú útreið, sem læknar fengu í þessari viðureign, mun verða þeim og öðrum embættismannastétttun til viðvörunar, svo að ætla má, að ríkisstjórnir næstu ára þurfi ekki að kvíða slíkum búsifjum frá þeirra hendi.