25.04.1932
Neðri deild: 59. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í C-deild Alþingistíðinda. (2994)

28. mál, almannafriður á helgidögum

Frsm. meiri hl. (Sveinbjörn Högnason):

Hv. þm. Ísaf. var að halda því fram, að ekki væri þörf á slíkri löggjöf, sem felst í brtt. hans, fyrir önnur skip en togarana, því að önnur veiðiskip misnotuðu ekki þessa helgidaga með því að vera að veiðum. Ég held, að þessi ályktun hv. frsm. hljóti að stafa af ókunnugleik hans á þessu, því að frá sumum verstöðvum ganga mótorbátar til fiskiveiða oft og tíðum á stórhátíðum. Mér finnst því sjálfsagt, að ákvæðin í brtt. hans verði gerð almenn og látin ná til allra veiðiskipa smærri og stærri.

Hv. þm. N.-Ísf. taldi, að erfitt og óhagstætt væri fyrir togarana að framfylgja þessu ákvæði, þegar þeir væru á ísfiskveiðum, en auðveldara, þegar þeir eru að fiska í salt. Það má nú vera, að þessu fylgi einhver óþægindi í fyrstu, fljótt á litið. En það er þá eingöngu um jólahátíðina að ræða. á árstíðum annara hátíða munu þeir ekki stunda ísfiskveiðar. Ég verð að segja, að enda þótt það valdi einhverjum erfiðleikum í svip að gefa frí yfir aðalhelgidaga jólanna, þá ætti slíkt ekki að telja eftir þeim mönnum, sem strita allan ársins hring úti á sjónum, fjarri heimilum sínum. Það ætti sannarlega að teljast sjálfsagt að veita þeim frí á aðfangadagskvöld jóla og sjálfan jóladaginn. Ég hefi heyrt útgerðarmenn hér í hv. d. margtaka það fram, að togaraútgerðin væri ekki arðsamur atvinnuvegur nú sem stæði, og þá sízt ísfiskveiðar. Sýnist því ekki mikið í hættu lagt, þótt sjómönnum á togurum væri jafnvel gefið frí yfir jólin og fram yfir nýar frá svo óarðsömu starfi. Eftir þeim upplýsingum, sem útgerðarmennirnir hafa um þetta gefið, sýnist ekki miklu sleppt, þótt þetta væri gert. Það er rétt, sem hv. 1. þm. S.-M. sagði, að æskilegast væri, að ekki þyrfti að lögbjóða þetta frí, en það væri gefið án þess. En reynslan hefir sýnt, að það er algengt, að togararnir séu á fiskveiðum á stórhátíðum, og seilast jafnvel sérstaklega til þess, og er því þörfin mikil fyrir að lögfesta þessi ákvæði. Þurfa þau einnig að ná til smábátaútgerðarinnar. Ég get því verið samþykkur þeirri uppástungu að setja almenn ákvæði um þetta og styð þá till. hans, að brtt. sé tekin aftur við þessa umr. Er þá hægt fyrir 3. umr. að koma fram með till., sem ákveður almenna friðun fyrir sjómenn sem aðra á stórhátíðum kirkjunnar.