25.04.1932
Neðri deild: 59. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í C-deild Alþingistíðinda. (3007)
28. mál, almannafriður á helgidögum
Jóhann Jósefsson:
Hv. frsm. hélt því fram, að ég færi með rangar staðhæfingar um notkun Vestm. á stórhátíðum. En þetta er ekki rétt. Ég var að mótmæla því, að þeir noti stórhátíðir til að róa. Það er regla þeirra að gera það ekki. Hitt kannast ég við, að þeir róa á öðrum helgidögum einstöku sinnum. En hér er eingöngu um að ræða stórhátíðir í þessu sambandi. Og það er hvorki venja þeirra að róa þá né t. d. á föstudaginn langa. Hv. þm. hefir engan rétt til að bera brigður á þetta, því að ég er þessu miklu kunnugri en hann. Og þótt undantekningar kunni að finnast, þá eru þær vegna knýjandi nauðsynjar, svo að engin ástæða er til að setja löggjöf um þetta þeirra vegna. Ég hygg nú, að þótt hv. frsm. stundi ekki sjálfur sunnudagaheyskap, að hans eigin sögn, þá mundi hann varla fara að kæra nágranna sína, þótt þeir væru brotlegir um slíkt, ef mikið lægi við að koma heyi undan hrakningi.
Hv. þm. Dal. virtist taka það illa upp, að ég minntist lítillega á skoðanabræður hans austur á Gyðingalandi, sem uppi voru fyrir mörgum öldum síðan. Ég get nú ekki skilið, hverju hann reiddist. Ef það hefir verið illkvittni af mér að segja þetta og nefna hann skoðanabróður fariseanna, þá væri það allt að einu illkvittni, ef einhver, sem uppi verður eftir 100–200 ár t. d., kallaði einhvern annan skoðanabróður útvarpsstjórans, sem uppi var á Íslandi það herrans ár 1932. Ég sagði þetta vitanlega af því, að hv. þm. taldi sig fylgja Móselögum, en það töldu farisearnir sig líka gera. —
Það gleður sjálfsagt komnúmista, að hv. frsm. hefir í hyggju að heimsækja Vestmannaeyjar. Hann ætti að koma boðum til kommúnistanna þar um að hann sé væntanlegur. Og þar sem nú má heita fullkomlega upplýst, að það var kommúnisti, sem bjó til hið fræga gat á rúðuna, þá er líka rétt, að boðunum fylgi sú ósk, að þeir noti ekki rottubyssurnar, þegar þeir fá svo góða heimsókn.