03.05.1932
Efri deild: 66. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í C-deild Alþingistíðinda. (3048)

583. mál, laun embættismanna

Jón Baldvinsson:

Ég vil aðeins spyrja hv. 1. flm., hversu miklu það nemi fyrir ríkissjóð að fá þennan sparnað í launagreiðslum til embættismanna. Og í öðru lagi þætti mér rétt, að við fengjum að heyra undirtektir hæstv. fjmrh. og hvort hann telur þetta rétta aðferð eftir að búið. er að framlengja dýrtíðaruppbótina fyrir næsta ár og ákveða, að hún gildi eins og hún er í launalögunum og eftir þeirri verðlagsskrá, sem samin er samkv. þeim. Mér skilst það vera að ganga á gefin loforð þingsins eða samninga — því það eru í raun og veru samningar —– við launamenn landsins, og það á sér varla nokkurn stað að fara að fella þá úr gildi. En sérstaklega vildi ég fá að vita, hve miklu þetta mundi nema og hvort hæstv. fjmrh. telur þetta óumflýjanlega nauðsynlegt mál, og hvort hv. flm. hafa athugað þá hlið þessa máls, sem að starfsmönnunum vikur. Ekkert af þessu kom fram hjá hv. 1. flm. í framsöguræðu hans.

Þetta mál kemur nokkuð seint fram, og þó ég viti ekki, hve þingið stendur lengi, þá býst ég ekki við, að það verði hægt að athuga það svo, að hægt verði að afgr. það. Ég veit að vísu ekki, hve mikið fylgi það hefir, en mér virðist, að það muni skera allmikið niður laun embættismanna, eftir því sem það er orðað, þó ég hafi ekki reiknað út, hverju það nemur fyrir ríkissjóð, og heldur ekki, hverju það nemur í frádrætti í launum hinna ýmsu launaflokka.

En sem sagt, mér þætti fróðlegt að fá þær upplýsingar, sem ég hefi óskað eftir frá hv. flm.