09.03.1932
Neðri deild: 24. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í C-deild Alþingistíðinda. (3062)
89. mál, ungmennaskóli með skylduvinnu nemenda
Bernharð Stefánsson:
Ég get ekki skilið, að þetta mál þurfi að vera í menntmn. Fjallar það um fleira en menntamal. Er t. d. talað um að leggja skylduvinnu á unglinga í sýslufélögum. Heyrir það undir almenna löggjöf, en ekki menntamal. Er það og ekki dæmalaust, að málum, er fjölluðu um skólamál, væri vísað til allshn. Hygg ég það munu vera rétt, að frv. því, er hér var fyrir skömmu, um ljósmæðraskóla, hafi verið vísað þangað. Gæti þetta frv. eins verið í allshn. og hitt.
Þó að annar af þm. Rang. sé frv. mótfallinn, þá er hinn flm. Ætla má, að báðir séu manna kunnugastir þessu máli. Þar sem þeir eru báðir í allshn. og á gagnstæðri skoðun, mætti gera ráð fyrir, að allshn. hefði bezt tök á því að athuga málið frá báðum hliðum. A. m. k. kemur þm. Rang. þetta mál mest við, að því bezt, að þeir eigist við um það í n.