09.03.1932
Neðri deild: 24. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í C-deild Alþingistíðinda. (3067)
89. mál, ungmennaskóli með skylduvinnu nemenda
Sveinbjörn Högnason:
Í sambandi við till. hv. 1. þm. Eyf. um að vísa málinu til allshn., vil ég geta þess, að það var fengið menntmn. á sumarþinginu, en dagaði þar uppi, enda þótt menntmn. hefði ekki ýkja mikið að starfa. En menntmn. ætti vitanlega að hafa betri aðstöðu til að athuga þetta mál, því að eins og kunnugt er, hefir allshn. geysimikið að starfa. Er það sjálfsagt betra fyrirkomulag, að mál, er snerta skóla landsins almennt, verði sett í menntmn. Eru það engin rök hjá hv. 1. þm. Eyf., að þm. Rang. séu málinu kunnugastir. Er þetta t. d. annað þingið, sem ég sit á, en frv. hefir verið flutt hér áður 4 sinnum. Tel ég víst, að hv. flm., sem svo oft hafa flutt það áður, séu því alveg eins kunnugir. Tel ég æskilegt, að þetta mál sé hjá þeirri n., sem hefir bezta aðstöðu til að athuga það vel, en ekki hjá allshn., sem langmest hefir að starfa, og þetta getur heldur ekki talizt að heyra undir þá n. eftir eðli sínu. Vil ég því eindregið mælast til þess, að því verði vísað til menntmn.