09.03.1932
Neðri deild: 24. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í C-deild Alþingistíðinda. (3068)
89. mál, ungmennaskóli með skylduvinnu nemenda
Lárus Helgason:
Ég tel óþarft að ræða mál þetta meira. Finnst mér réttast, að það væri ekki látið ganga lengra en til þessarar umr. Ég held, að þingið hafi annað við tímann að gera en að eyða honum í þetta mál, sem er flutt hér á þingi ár eftir ár, án þess nokkur alvara fylgi frá hv. flm., og hefir reynslan sýnt, hvernig farið hefir áður. Greiði ég því atkv. á móti því, að málið fari áfram.