26.04.1932
Neðri deild: 60. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í C-deild Alþingistíðinda. (3084)
89. mál, ungmennaskóli með skylduvinnu nemenda
Frsm. meiri hl. (Sveinbjörn Högnason):
Mér kemur einkennilega fyrir sá mikli gustur, sem úti virðist vera í ræðum hv. þdm. gegn þessu frv., vegna þeirrar viðtöku, sem það hefir hlotið hér á undanförnum þingum, enda þótt það hafi ekki náð fram að ganga. Hv. þm. S.-Þ. sagði, að málið hefði mjög lítið verið rætt hér áður í þd. og aldrei skýrt. Ég hefi nú fyrir mér umr. í Alþt. frá 1930, sem eru alllangar, og þar hefir meira að segja hv. þm. sjálfur sýnt málinu þann heiður að taka þátt í umr., en eins og kunnugt er, þá gerir hann það sjaldan og sýnir ekki mörgum málum þá virðingu að halda ræður um þau. Af þessu sést, að þetta frv. hefir verið rætt og skýrt áður hér í hv. þd.
Þá minntist hv. þm. S.-Þ. á, að á frv. væru aðallega þeir agnúar, að fyrst og fremst færi það beinlínis í bága við grundvöll þeirra l., sem nú gilda um unglingafræðsluna í landinu, og væri það mjög til hins verra. En ef svo er, þá hygg ég að ekki verði mörg sýslu- eða bæjarfélög til þess að taka þetta fyrirkomulag upp. Annars lít ég svo á, að það skipulag sem nú gildir um unglingafræðsluna í landinu, sé ekki orðið svo fastbundið eða þrautreynt, að annað geti ekki komið þar til greina, sem reyna megi.
þá var það ekki rétt hjá hv. þm., að undir núverandi skipulagi sé nemendum gert sem auðveldast að njóta unglingafræðslu; hvert á móti er þeim gert torvelt fyrir í því efni. En eins og ég tók fram í framsöguræðu minni, þá stefnir þetta frv. að því að efla almenna lýðfræðslu, og í frv. eru atriði, sem leiða til þess beinlínis, að undantekningar verða, ef allir unglingar nota sér ekki skólavistina.
Í öðru lagi taldi hv. þm. S.-Þ., að fjárframlög ríkissjóðs til héraðsskóla mundu aukast stórkostlega, ef þetta frv. yrði að l., en aftur á móti yrði létt af héruðunum fjárframlögum til skólastofnana. Eins og ég hefi áður tekið fram, þá á ríkissjóður nú að leggja 2/5 til bygginga gagnfræðaskóla í kaupstöðum, og helming stofnkostnaðar til héraðsskóla í sveitum. En árlegur rekstrarstyrkur úr ríkissjóði til þessara skóla er til verulegra muna meiri en stofnkostnaðurinn. Eins og hv. form. fjvn., þm. S.-Þ., má vera kunnugast, er nú þegar álitleg fúlga í fjárl. — 171280 kr. — ætluð til rekstrar þessum skólum, og er nokkurn veginn gefið, að sú upphæð hlýtur að aukast, þegar fleiri skólar bætast við. Þessi árlegi rekstrarstyrkur, sem ríkissjóður verður að greiða, eykst stöðugt, og á hverju ári er varið meiru fé úr ríkissjóði til rekstrar skólunum heldur en þó að nýr skóli væri reistur á hverju ári. Ég tók það fram í framsöguræðu minni í dag, að það fyrirkomulag, sem hugsað er í þessu frv., kæmi léttara við fjárhag ríkissjóðs heldur en það skipulag, sem nú gildir, og þykist ég nú hafa bent á nægar sannanir í því efni. Ég sé ekki, að það sé ákaflega varhugavert, þó að ef til vill fyndist heppilegra skipulag í skólamálunum en það, sem nú er lögfest. Ég skal ekki fullyrða, að það felist í þessu frv., en þar er þó gerð tilraun til þess að dreifa fræðslukostnaðinum í landinu meira en nú er og skapa breiðari grundvöll undir skipulagið á unglingafræðslunni en nú er. Ég teldi það ekki óheppilegt, þó að sú bót yrði ráðin á þessu máli, að rekstrarkostnaði héraðsskólanna yrði að nokkru létt af ríkissjóði, en fræðslan næði þó betur tilgangi sínum en verið hefir og kæmi jafnar niður á héruðin. Ég hygg, að ég hafi nú sýnt fram á það, að þær ástæður, sem dagskrártill. hv. þm. S.-Þ. byggist á, að frv. brjóti í bág við gildandi héraðsskólalög og auki útgjöld ríkissjóðs til alþýðufræðslunnar í landinu, séu ekki á rökum reistar, og að þess vegna sé ekki forsvaranlegt að vísa frv. frá.
Hv 1. þm. N.-M. óttaðist, að héruðin mundu tæmast af ungu fólki, ef þessi kvöð, sem talað er um í frv., yrði lögð á ungu mennina, því að þeir mundu ekki vilja sæta þeim kjörum til skólavistar, sem frv. gerir ráð fyrir. Skólarnir mundu tæmast og framlög ríkisins til þeirra mundu þar af leiðandi ekki koma að notum. — Ég hygg, að þegar það er athugað, að samkv. frv. á ekki að stofna til þessa skólaskipulags, nema 2/3 kjósenda í einu bæjarfélagi eða héraði óski eindregið eftir því, þá sé það nokkurn veginn tryggt, að hver einasti kjósandi í héraðinu sé því fylgjandi. Og þá skil ég ekki í því, að hin uppvaxandi kynslóð leggist svo á móti því máli, sem samþ. hefir verið af öllum þeim, sem atkvæðisrétt hafa í héraðinu og bæjarfélaginu. Ég get ekki hugsað mér, að svo mikið ósamræmi geti átt sér stað í skoðunum og vilja þroskaða fólksins og unglinganna, þótt það kunni að vera eitthvað. Og hvað því viðvíkur, að fé ríkissjóðs sé kastað á glæ, ef skóli, sem reistur hefir verið, tæmist af nemendum, þá eru með brtt. meiri hl. n. reistar skorður við því, þar sem ákveðið er, að hlutaðeigandi bæjar- eða sveitarfélag endurgreiði ríkissjóði stofnkostnað skólahúsanna með afborgunum á 40 árum, ef hætt er við að starfrækja hann skv. þessum 1. Hv. 1. þm. N.-M. sagðist í raun og veru telja sig hlynntan þegnskylduhugmyndinni, en vildi þó ekki leggja meiri kvöð á unglingana en sem svaraði skólavistarkostnaði þeirra annarsstaðar; vildi hann, að þeim væri útveguð skólavist fyrir þá þegnskyldu, sem þeir inntu af höndum. En slíkt er vitanlega engin þegnskylda og mætti miklu fremur kalla það atvinnubætur, ef unglingunum er útveguð atvinna og greitt fullt kaup fyrir, með því að láta þá fá ókeypis skólavist. Hitt er þegnskylda að vinna nauðsynjastörf fyrir landið sitt eða sveitina, án þess að heimta fullt kaup fyrir, endurgreitt í reiðu silfri eða á annan hátt þegar í stað.
Ég hefi frá upphafi, frá því að ég fyrst man eftir, hneigzt að þegnskylduhugmyndinni og álít, að ef þegnskylduvinnu væri stjórnað af góðum og vitrum mönnum, þá mundi hún leiða margt gott af sér. Við þurfum að gera miklar framkvæmdir og umbætur á þessu landi á stuttum tíma, og það er lítt hugsanlegt, að við höfum reiðufé til þess að greiða fyrir þær að svo stöddu.
Hv. þm. Borgf. let svo um mælt seint í ræðu sinni, eftir alllangan formála, að hann flytti brtt. sínar við þetta frv. af mikilli góðvild til málsins, einlægni og skilningi á gildi þess. En ég verð nú að segja, að ég get hvergi fundið þessa góðvild og skilning skína út úr brtt., þegar þær limlesta frv. að öllu leyti og það á að útiloka, að sú heimild, sem í frv. felst, fáist nema fyrir eitt einasta hérað. — Eða telur hv. þm. það velvilja til málsins að banna Borgfirðingum, Reykvíkingum, Hafnfirðingum og öllum öðrum bæjar-og sveitarfélögum að fá þessi heimildarlög? Er Það velvilji til málsins að útiloka flesta landsmenn frá því að geta notið þess? Ef hv. þm. Borgf. álítur það, þá leggur hann annan skilning í orðið velvilji heldur en ég og flestir aðrir gera. Hv. þm. vildi aðeins gera þessa tilraun á einum stað, en ef hann gerir það af einlægni og velvilja til málsins, þá skil ég ekki, hvaða ástæðu hann hefir til þess að sporna við því, að fleiri héruð fái að gera slíka tilraun og reyna, hvert gildi hún hefir fyrir þau, ef hann, að því er mér skilst, álítur þetta til góðs fyrir eitt hérað.
Hv. þm. taldi, að engar óskir né áskoranir hefðu komið fram um þetta annarsstaðar en úr Rangárvallasýslu. Ég er nú ekki kunnugur óskum manna í öðrum héruðum um þetta efni, en þó minnist ég þess, að vikið hafi verið að þessu nýskeð á fundi á Austurlandi og bornar fram óskir til Alþingis í þá átt, sem þetta fer. Og ekki er langt síðan þinginu barst áskorun um þetta efni frá stj. Sambands sunnlenzkra kvenna. Þessar áskoranir eru ekki úr Rangárvallasýslu; hún stendur ekki ein að þessu máli, eins og hv. þm. Borgf. vill vera láta. Flm. frv. eru líka fulltrúar annara héraða víðsvegar á landinu. Því er nú miður, að Rangárvallasýsla á ekki svo marga fulltrúa á hv. Alþingi. Hv. þm. Borgf. sagði, að með þessu frv. væri verið að troða því fyrirkomulagi, sem í því felst, upp á önnur héruð, sem ekki vildu við því líta. En þetta er hinn mesti misskilningur. Hér er aðeins um heimildarl. að ræða fyrir þau héruð, sem vilja reyna þetta fræðsluskipulag, en enga skyldukvöð. Hv. þm. taldi það nægilega skýringu fyrir mig, að óþarft hefði verið af mér að telja það prentvillu í brtt. hans, að frv. skyldi gilda fyrir Rangárvallasýslu en ekki Borgarfjörð, að Borgfirðingar væru nýskeð búnir að koma fullkomnu skipulagi á unglingafræðsluna í sínu héraði. — En mér er nú ekki grunlaust um, að hann hafi sjálfur ekki verið svo óðfús til að koma á því fyrirkomulagi, sem nú er í héraði hans, og ég hafði því fulla ástæðu til að halda, að hann óskaði einhvers annars.
Ég ætla ekki að tala um kartöflur, eins og hv. þm. Borgf., í sambandi við þetta mál, en þó get ég frætt hann um það, að ég hefi engar ásakanir fengið úr mínu kjördæmi fyrir framkomu mína í kartöflumálinu. En mér þykir ekki ósennilegt, að hann hafi fengið ákúrur frá kjósendum sínum fyrir sína takmarkalausu þröngsýni og einstrengingshátt í því máli, sem tefldi því vitanlega í opinn dauðann.
Um brtt, hv. þm. Borgf. vil ég segja það, að ég þekki engin dæmi þess áður í skólalöggjöfinni, að fyrir aðeins eitt hérað eða sýslu séu látin gilda sérstök l. Mér finnst sjálfsagt, að ef þingið setur heimildarl. um þetta fyrirkomulag, þá sé hvaða héraði og bæjarfélagi, sem það vill, gefinn kostur á að reyna þau, og að það eigi ekki að skipta neinu máli, hvar þeir menn eru búsettir í landinu, sem kynnu að hafa hug á að reyna lýðskólarekstur í sambandi við skylduvinnu.