26.04.1932
Neðri deild: 60. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í C-deild Alþingistíðinda. (3092)

89. mál, ungmennaskóli með skylduvinnu nemenda

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég vildi gefa Rangæingum það ráð, til þess að fá forgangsrétt að Laugarvatnsskóla umfram aðrar sýslur, að leggja fram til hans eitthvert ofurlítið stofnfé. Það gæti orðið þeim ódýrara heldur en að hafa sérstakan skóla. En það, að Rangæingar fengju forgangsrétt að Laugarvatnsskóla með Árnesingum, þyrfti á engan hátt að vera til þess að bægja ungmennum úr öðrum sýslum frá skólagöngu, því að þau myndu þá bara fylla hina alþýðuskólana. Því það er nú svo, að þeir eru ekki fullskipaðir. Þetta væri heillaráð fyrir Rangæinga, að standa að einhverju leyti undir kostnaðinum við Laugarvatnsskóla með Árnesingum og sjá til, hvort plássið þar hrykki ekki. Ég skil ekki, að fólk þarna austur frá þurfi að hafa hátt um skólaleysi í bráð, þegar nú er loksins kominn fullkominn skóli fyrir um 140 manns í nágrenni þess, eftir svo langa bið. Og mér er ekki kunnugt um, að æskulýðurinn á þessum slóðum heimti vegavinnu þá, sem hér er um að ræða. 16–18 ára piltar eru í sveitum. vinnandi menn; í því efni þarf ekkert aðhald að setja, svo að frá því sjónarmiði er vinnuskyldan þýðingarlaus. Og ég er mótfallinn því að taka af mönnum frelsið um það, hvar þeir vinna, hvort þeir vilja vinna heima hjá foreldrum sínum eða annarsstaðar. Úti um sveitir þekkjast ekki starfslausir unglingar; þeir munu frekar vera til í kaupstöðunum, en þar býst ég við, að torvelt væri að koma þessu skipulagi á.

Það er misskilningur, að ég gruni þá flm. frv. um óheilindi í málinu, sem nú flytja það og barizt hafa fyrir því nærri hálfan sólarhring. Það voru hinir fyrstu flm. þess, sem ég átti við, því að þeir voru hræddastir við það, að vera ekki grunaðir um óheilindi í málinu. Og ég sagðist efast um, að Rangæingar væru yfirleitt heilir í þessu máli, og til þess hefi ég fulla ástæðu. Heilindi núv. flm. frv. dreg ég ekki í efa, en undrast þau hinsvegar stórlega.