02.05.1932
Neðri deild: 65. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í C-deild Alþingistíðinda. (3126)

89. mál, ungmennaskóli með skylduvinnu nemenda

Haraldur Guðmundsson:

Ég flyt hér á þskj. 563 nokkrar brtt. við þetta frv., í framhaldi af því, sem ég mælti hér við 2. umr. þessa máls.

Þær breyt., sem ég legg til, að gerðar verði á frv. frá því, sem það er á þskj. 544, eru aðallega tvær. Í fyrsta lagi, að frv. sé að því leyti fært í sinn eldri búning, að heimildin til þess að taka upp þetta skólafyrirkomulag sé ekki bundin við Rangæinga eina, heldur nái hún til sýslu- og bæjarfélaga almennt. Og í öðru lagi er það sú aðalbreyt., sem ég minntist á við 2. umr., að í stað þess, að í frv. er um að ræða vinnuskyldu gegn skólaréttindum, er í mínum till. gert ráð fyrir eins til tveggja vetra skólaskyldu og vinnuréttindum á móti, þannig, að nemendum sé gefinn kostur á að vinna af sér kostnaðinn við skólaveruna með vinnu í þágu síns bæjar- eða sveitarfélags. Svo eru nokkrar smærri breyt., sem að nokkru leyti leiða af þessari meginbreyt. Auk þess er í till. mínum konum gert jafnhátt undir höfði og körlum. Í frv. er gert ráð fyrir, að vinnuskyldan og skólaréttindin séu bundin við 18 ára aldur. Í mínum till. er aftur á móti gert ráð fyrir, að skylda megi alla unglinga til að stunda nám einn til tvo vetur, einhvern tíma á árabilinu frá 15 til 19 ára aldurs. Það er tvímælalaust til hægðarauka fyrir unglinganna og aðstandendur þeirra, að geta valið um hvert af þessum árum þeir nota til námsins.

Í frv. er gert ráð fyrir, að „húsvist“ og kennsla sé greidd með sjö vikna vinnu að vorlagi í þarfir viðkomandi sýslufélags. Mér virðist óviðkunnanlegt að gera ráð fyrir, að nemendur greiði sérstaklega fyrir húsnæði í skólanum, enda ætti þess ekki að gerast þörf, þar sem í 3. gr. frv. er gert ráð fyrir, að sýslufélögunum séu lögð til skólahús, þeim algerlega að kostnaðarlausu. Hinsvegar væri nokkuð ríflegt að ætla sjö vikna vinnu að vorlagi til þess að greiða með fyrir kennsluna eina. Í till. mínum er gert rás fyrir, að nemendum sé gefinn kostur á að vinna af sér, ekki einasta kennslukaupið, heldur einnig fæðiskostnaðinn. Af því leiðir, að ekki er hægt að ákveða, hvað vinna á langan tíma; það verður að ákveða með reglugerðarákvæðum eftir staðháttum á hverjum stað.

Um aðrar af till. mínum þarf ég ekki að fjölyrða, því að þær leiðir af þeim breyt., sem ég nú hefi lýst. Þær eru að mestu sniðnar eftir hinu upphaflega frv., að öðru leyti en því, að skólaskylda er tekin upp í stað vinnuskyldu og vinnuréttindi í stað skólaréttinda.

Ég hygg, að margir af hv. þdm. séu mér fullkomlega sammála um það, að tími sé kominn til þess að taka það til athugunar, hvort ekki er ástæða til að lögbjóða á, m. k. eins árs nam umfram barnafræðsluna. Ég hygg, að reynslan hafi sýnt það, að einn vetur til náms eftir 14 til 15 ára aldur jafngildi, ef um góða kennslu er að ræða, miklu lengri námstíma á yngri árunum. Og ekki verður því neitað, að sú fræðsla, sem heimtuð er undir burtfararpróf úr barnaskólunum, er ekki svo veigamikil, að ekki væri full þörf á að bæta við sem svarar eins vetrar námi á unglingsárunum. Hér er þó ekki gengið svo langt að taka upp almenna skólaskyldu unglinga, heldur er í mínum till. aðeins gert ráð fyrir að veita sýslu- og bæjarfélögum heimild til þess að fyrirskipa eins til tveggja vetra nám unglinga, hvert hjá sér, þegar mikill meiri hl. kjósendanna óskar þess. Þótt ekki sé það fram tekið í till. mínum, geng ég út frá því, að nemendur slíkra skóla sem þar er gert ráð fyrir njóti sama styrks frá því opinbera og nú er veittur til héraðsskóla og gagnfræðaskóla.