17.03.1932
Efri deild: 31. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í C-deild Alþingistíðinda. (3146)

159. mál, framfærslulög

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Í sambandi við fyrirspurn frá hv. 6. landsk. um daginn um það, hvað liði aðgerðum ríkisstj. út af þál. síðasta þings um breyt. á fátækralögunum, gat ég þess þá, að á leiðinni væru till. um þau efni. nú leyfi ég mér að afhenda þeirri n., sem frv. þetta fær til meðferðar, frv. með ýtarlegri grg. frá skrifstofustjóranum í atvmrn. og hagstofustjóra. Fylgja grg. nákvæmar skýrslur um, hvernig fátækrakostnaður kemur niður á einstaka hreppa landsins, miðað við mannfjölda, skattskyldar tekjur og skuldlausar eignir. Af þeim skýrslum sest greinilega, hversu gífurlegt ósamræmi er í þessum efnum og hversu brýn þörf er umbóta á fátækralöggjöfinni. Sem dæmi má nefna tvo hreppa, Fáskrúðsfjarðarhr. í S.-Múlasýslu og Fljótshlíðarhr. í Rangárvallasýslu. Í hinum fyrrnefnda eru fátækraútgjöldin 20,90 kr. á mann, á 100 kr. skattskyldar tekjur 49,24 kr., og á 100 kr. af skuldlausri eign 10,92 kr. Hinsvegar eru fátækraútgjöldin í Fljótshlíðarhreppi 0,12 kr. á hverjar 100 kr. skuldlausar eignir, þar sem voru nær 11 kr. í Fáskrúðsfjarðarhreppi. Í sumum hreppum í A.-Skaftafellssýslu er enginn fátækrakostnaður.

Með því að nú eru slík mál sem þetta til meðferðar í báðum d. þingsins, má ætla, að einhver lausn fáist á þessi mál á þessu þingi, enda er þess brýn nauðsyn. Ég mun afhenda hv. allshn. þessarar d. þessi gögn til frekari athugunar.