07.05.1932
Efri deild: 69. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 343 í C-deild Alþingistíðinda. (3161)

159. mál, framfærslulög

Jón Baldvinsson:

Það liggur í hlutarins eðli, að ég hefi ekki ástæðu til að gera aths. við frv. þetta, sem flutt er af sjálfum mér og hv. d. samþ. óbreytt við 2. umr. En þó vildi ég minnast á, að ég tel vel ráðið, að hv. d. lofi frv. að ganga til hv. Nd., svo að hún geti athugað það í sambandi við annað frv., svipaðs efnis, sem hún hefir fengið, ef vera mætti, að eitthvað verulegt yrði gert til þess að breyta fátækralöggjöfinni og bætt úr þeim örðugleikum, sem héruðin eru stödd í vegna fátækrakostnaðarins. Þess vegna sýnist mér fara vel á því að lofa frv. að ganga til hv. Nd.