17.02.1932
Neðri deild: 3. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (317)

4. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Hv. þm. Seyðf. lét sér tíðræxtt um þáltill., sem afgr. var undir þinglokin í sumar út af dýrtíðinni. Hann var að hnýsast eftir því, hvað gert hefði verið í þessu efni. Ég get upplýst það, að mikil vinna hefir verið lögð í að inna þetta verkefni af hendi, og þessa dagana er verið að fjölrita rækilega og merkilega skýrslu um eitt aðalatriðið í þessu máli. Er hún samin af skattstjóra og mun verða útbýtt nú á næstu dögum.