09.05.1932
Neðri deild: 70. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 345 í C-deild Alþingistíðinda. (3173)
263. mál, dragnótaveiðar í landhelgi
Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson):
Þetta frv. er flutt af hv. 3. þm. Reykv., og hefir meiri hl. sjútvn. fallizt á að mæla með því, þó dálítið breyttu. Frv. fer fram á það, að dragnótaveiðar séu bannaðar eingöngu frá 1. marz til 31. júlí hvert ár. En sjútvn. hefir lengt þennan tíma, þannig að hún leggur til, að bannið sé frá 1. jan. til 15. júlí. Ennfremur hefir n., í stað þess eins og frv. fer fram á að fella burt 8. gr. l., heimild fyrir einstök héruð til að koma á banni hjá sér, lagt til, að heimilt verði að veiða með dragnót 2 mánuði hvert ár innan landhelgi einstakra lögsagnarumdæma á öðrum tíma en ákveðið er í frv. Ég þarf ekki að rekja þetta mál, því það hefir verið mikið rætt á síðustu þingum og samþ. í d. þessi atriði í málinu. Minni hl. sjútvn. hefir ekki getað orðið samferða meiri hl. og leggur til, að frv. verði fellt. Fyrir alllöngu síðan kom brtt. á þskj. 474 frá hæstv. dómsmrh. um það, að í staðinn fyrir 1. marz til 31. júlí kæmi 1. febr. til 31. maí. Þetta framlengir leyfið til að veiða með dragnót í landhelgi allan júnímánuð. Svo langt hefir n. ekki viljað ganga. Hinsvegar fór hann nokkurskonar millileið í málinu eins og þskj. 622 ber með sér.
Ég ætla ekki að hafa hér fleiri orð. Þetta mál var rætt mikið á síðasta þingi, bæði með og móti, og síðan þær umr. fóru fram hefir verið gefinn út bæklingur af fiskifræðingnum Árna Friðrikssyni, þar sem sýnt er fram á, að það er ekki skynsamleg stefna að banna dragnótaveiðar svona langan tíma, til þess að Íslendingar verði af þessum veiðum, til hagsmuna fyrir útlendinga.