19.04.1932
Efri deild: 55. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í C-deild Alþingistíðinda. (3209)
61. mál, gelding hesta og nauta
Jón Jónsson:
Hv. Nd. hefir breytt lítilsháttar þessu frv. frá því, sem það var þegar þessi hv. d. skilaði það kæmi ekki til framkvæmda sem lög fyrr en 1. jan. 1935, en hv. Nd. hefir breytt þessu ákvæði í 1. jan. 1933. Okkur hér, bæði landbn. og hv. d., hafði fundizt nauðsynlegt að fresta framkvæmd þessara laga, til þess að héruðin hefðu nægan tíma til að útvega sér hæfa menn til þessa vandasama starfa, að svæfa þessi dýr, sem frv. ræðir um. Það er sjáanlegt, að eigi frv. að koma til framkvæmda þegar á næsta ári, þá verður ekki undirbúningurinn nægilegur. Ég vil því mælast til þess við hv. d., að hún sjái sér fært að breyta frv. aftur í sama horfið. Ég tel það svo nauðsynlegt, að ég býst ekki við að sjá mér fært að greiða atkv. með frv., ef sú breyt nær ekki fram að ganga hér í hv. d.