10.05.1932
Efri deild: 71. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í D-deild Alþingistíðinda. (3210)

636. mál, strandferðir

Jón Jónsson:

Ég vil byrja á því að biðja d. velvirðingar á því, að ég hefi ekki nema að litlu leyti getað unnið að þeim störfum, sem d. ætlaðist til, að ríkisgjaldan ynni að. Þess vegna hafa störfin aðallega bitnað á samnm. mínum, hv. 1. landsk. Hann hefir unnið úr þeim plöggum, sem við höfðum aflað okkur. Og árangurinn frá hans hálfu er þessi till., sem nú liggur fyrir. Mér virðist þessi till. vera fullákveðin, því að eftir því sem till. hljóðar, þá er auðséð, að gengið er út frá því sem sjálfsögðu að semja við Eimskipafélagið um að taka að sér strandferðirnar, hvað sem hugmyndin er að verði um þessi skip ríkisins. Mér finnst þetta mál ekki vera ennþá nógu athugað til þess, að ástæða sé fyrir þingið að leggja á það neinn dóm, hvernig þessu yrði bezt hagað. En hitt er rétt, sem hv. þm. benti rækilega á í þessari grg., að kostnaðurinn við strandferðir, bæði ríkisins og Eimskipafélagsins, er alveg geysilega mikill, og hann þyrfti nauðsynlega að lækka, ef þess væri kostur. Ég skal geta þess, að ég hefi ekki getað kynnt mér rækilega þessa skýrslu frá n., sem skipuð var til að athuga strandferðakostnað Eimskipafélagsins. En ég býst við, að hún sé dálítið athyglisverð, að fullmikið af kostnaði við millilandaskipin sé talið til strandferðakostnaðar. Ég get hugsað mér, að það megi ráða bót á þessu með ýmsum öðrum hætti en hér er gert ráð fyrir. Ég hugsa mér það þannig, að það geti verið miklu meira samstarf milli Eimskipafélagsins og ríkisútgerðarinnar en nú er, t. d. að áætlanir séu meira miðaðar hver við aðra heldur en nú er gert. En það, hvort kostnaður við rekstur við stjórn útgerðarinnar muni færður niður, er ekki augljóst hjá hv. 1. landsk. Þó er því alls ekki þannig varið, að útgerðarstjórn ríkisskipanna hafi orðið meiri en Eimskipafélagið bauðst til að taka þau fyrir, þegar skipaútgerðin var sett upp, og þó hafði skipaútgerðin fleiri en strandferðaskip. Þar sem ýmislegt þarf athugunar við, er ekki vert fyrir þingið að slá neinu föstu um það, hvernig þessu verði fyrir komið, heldur aðeins beina áskorun til ríkisstj. að íhuga þetta mál í samráði við Eimskipafélagið. Með því móti finnst mér þingið gera allt, sem það getur gert viðvíkjandi þessum strandferðum, að áminna stj. um að athuga þetta mál sem rækilegast í samráði við Eimskipafélagið.

Ég hefi leyft mér að bera fram brtt. á þskj. 685 um nýja orðun á gr., sem felur þetta í sér. Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta frekar, en ég geri ráð fyrir, að stj. geti ef til vill skýrt þetta betur.