10.05.1932
Efri deild: 71. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í D-deild Alþingistíðinda. (3212)

636. mál, strandferðir

Jón Jónsson:

Ég hafði átt von á því, að hæstv. atvmrh. yrði hér við umr. En hann er forfallaður og hefir ekki getað komið. Okkur hv. 1. landsk. ber ekki mikið á milli annað en um kostnaðinn sjálfan. Þó býst ég við, að hann telji útgerðarkostnað við ríkisskipin hér í frv. Ég býst við, að hann telji þarna með ýmsa liði, þegar hann ber saman við Eimskipafélagið, sem tæplega er rétt, t. d. endurskoðun á reikningum og svo á 3. þús. kr. lið, sem er eftirlaun. Þetta virðist vera talið þarna með. (JónÞ: Nei, það er ekki talið með). En það virðist nú samt vera talið þarna með. Og eftir því sem það virðist vera, telur hann útgerðarstjórn strandferðaskipanna 3–4 þús. kr. hærri en frekast er hægt að skrúfa upp. Útgerðarstjórn Esju var hærri en þetta áður, en það mun hafa verið boðið þetta niður, þegar til orða kom að setja upp sérstaka stjórn fyrir ríkisskipin. Mér finnst ekki hafa ennþá komið svar frá hv. þm., hvernig hann hugsar sér fyrirkomulag á útgerðarstjórn hinna annara ríkisskipa, en það þarf að athugast um leið. Þess vegna finnst mér ekki vert að slá neinu föstu, heldur taka þá leiðina, sem ég hefi bent á og sem ég vona, að nái því marki, sem fyrir okkur vakir, að draga úr strandferðakostnaðinum, sem sé að láta stj. athuga þetta í samráði við Eimskipafélagið. Ég vona því, að hv. d. geti fallizt á till. mína.