29.02.1932
Efri deild: 15. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í D-deild Alþingistíðinda. (3223)

23. mál, milliþinganefndir um iðjumál og iðnað

Halldór Steinsson:

Hæstv. forsrh. má ekki halda, að í orðum mínum áðan hafi falizt sérstakt traust til hans eða stj., þótt ég héldi því fram, að óþarft væri að skipa mþn. í þessi mál. En hitt sagði ég, að hæstv. stj. ætti sjálf að vera fær um að ráða fram úr þessum málum með aðstoð sérfróðra manna, og þó að eitthvað þyrfti að greiða fyrir slíka aðstoð, mundi sá kostnaður verða hverfandi samanborið við kostnað við milliþinganefnd. Ég þori að fullyrða það, að á fjölmennum fundi, sem þetta ráð hélt nýlega, var þessu haldið fram, án þess að nokkur mótmælti því, og að meiri hl. iðnaðarmanna vill, að till. nái ekki fram að ganga á þessum grundvelli.

Hæstv. ráðh. kvaðst hafa átt tal við ýmsa iðnaðarmenn hér í Reykjavík, sem væru hlynntir því, að þessi n. væri skipuð. Ég býst við, að þeir séu hlynntir einhverri leiðréttingu þessara mála, sérstaklega um þau atriði, sem þeir taka fram í bréfinu, sem fylgir grg. frv., sem sé endurbætur á iðnlöggjöfinni og tollalöggjöfinni, og sem þeir leggja áherzlu á, að tekin verði til greina. En eins og ég hefi áður sagt, mætti vel ráða bót á þessu án þess, að skipa þurfi til þess sérstaka mþn. og án þess að ríkisstj. þurfi að fá til þess nokkra aðstoð.