11.04.1932
Efri deild: 48. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í D-deild Alþingistíðinda. (3229)

23. mál, milliþinganefndir um iðjumál og iðnað

Jakob Möller [óyfirl.]:

Ég hefi skrifað undir nál. með fyrirvara, og sá fyrirvari nær alla leið upp í það, að greiða atkv. á móti till. Það er þó ekki af því, að ég sé í raun og veru mótfallinn því, að eitthvað sé gert í þá átt, sem till. fer fram á, en ég hefi litla von um árangur af skipun þessarar n.

Eins og till. var upphaflega orðuð, þar sem hún aðallega virtist borin fram í þeim tilgangi að skipa þessa n. til að fást við endurskoðun á iðnaðarlöggjöfinni, var hún gersamlega tilgangslaus. Það er gersamlega tilgangslaust að skipa menn í mþn. á þann hátt, sem ætlazt var og er til, til að endurskoða iðnaðarlöggjöfina. Hitt atriðið, að rannsaka og gera till. um, hvað og hvernig vinna mætti úr íslenzkum hráefnum, er náttúrlega mikilsvert, ef maður gæti gert sér von um árangur af slíku nefndarstarfi. Og það er eina atriðið í till., sem ég tel hæpið að leggjast á móti, að verði gert. Hinsvegar hefi ég ekki mikla trú á því, að n., skipuð af stj. eða kosin af þinginu, geri nokkuð verulegt í því efni umfram það, sem þeir atvinnurekendur, sem hagsmuna hafa að gæta í þessu sambandi, eru færir um að gera og hafa hvöt til að gera vegna sinnar eigin atvinnu.

Um skipun n. er það að segja, að ég hefði talið fara vel á því, að einn maður væri nefndur í hana fyrir verzlunarstéttina; ég sé ekki, hvað fulltrúi frá Alþýðusambandi Íslands á að gera í n. — mér er ekki ljóst, hvaða hlutverk sá maður á að inna þar af hendi. En hitt getur hver maður sagt sér sjálfur, að fulltrúi frá verzlunarstéttinni hefir þar mikið hlutverk að vinna, því verzlunarmenn eru því kunnugastir, hvar markaður er fyrir þær vörur, sem hægt væri að framleiða hér. Ég geymi mér því rétt til þess að bera fram við síðari umr. brtt. um skipun n.

Þá er það eitt atriði annað, sem vert er að athuga, hvort þessi n. á ekki að vera ólaunuð, þar sem hér er um störf að ræða, sem snerta svo mjög hagsmuni þeirra manna, sem skipaðir verða í n., að það verður að telja, að þeir séu þar að vinna að eigin málefnum, og því eðlilegt, að þeir vinni kauplaust að þessu.