11.04.1932
Efri deild: 48. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í D-deild Alþingistíðinda. (3231)
23. mál, milliþinganefndir um iðjumál og iðnað
Magnús Torfason:
Að því er snertir brtt. meðnm. míns, hv. 1. þm. Reykv., þá lýsi ég því yfir, að ég get ekki fyrir hönd n. tekið neina afstöðu til brtt., af þeirri einföldu ástæðu, að hún hefir ekki verið rædd í n. og því síður tekin um hana ályktun.
Hæstv. forsrh. gat þess réttilega, að nokkrar breyt. hefðu orðið á afstöðu Iðnaðarmannafélagsins til þessa máls. En n. leit svo á, að réttast væri að fara eftir því, er síðast hefði fram komið frá þess hendi. Því er nú einu sinni svo farið, að við erum öll mannanna börn, og hér er ekki annað skeð en það, að iðnaðarmálaráðið hefir hér náð til æðri og betri þekkingar á því, hvað það vill hér vera láta. Að því er snertir iðnaðarlöggjöfina frá 1926, þá vita allir hv. þdm., að brtt. við hana hafa verið hér á ferðinni þing eftir þing, en ekki náð fram að ganga. Það hefir komið fram, að till. í því efni hafa sérstaklega, að því er virzt hefir, verið miðaðar við Reykjavík, því iðnaðarmálaráðið þekkir bezt til um kjör iðnaðarmanna hér í bænum, sem það hefir því tekið mest tillit til, en síður til sveita.
Iðnaðarmálaráðið hefir ekki viljað fallast á það, að Alþýðusamband Íslands veldi einn mann í n. Ég skal fyrir mitt leyti játa það, að ég vil fyrir hvern mun taka tillit til bendinga úr þeirri átt, en þó get ég ekki fallizt á þetta. Ég er viss um, að það væri vel ráðið, ef Alþýðusambandið fengi að velja einn mann í n. og að n. mundi við það hljóta meiri pólitískan stuðning en ella. Því tel ég ekki rétt að stinga þar við fæti. Í öðru lagi hélt ég, að sú hugsun lægi á bak við till. hæstv. stj., að með þessari skipan n. fengist alhliða íhugun um mál iðnaðarins. Ég tel, að það sé gott og þarft og ef til vill alveg nauðsynlegt, að Alþýðusamhand Íslands hafi hér íhlutunarrétt, og það því fremur, sem ég hefi við eftirgrennslan komizt að því, að það eru ekki svo fáir merkir og greindir menn; sem fylgja Alþýðuflokknum að málum. Ég mun því greiða því atkv., að Alþýðusambandið fái að velja fulltrúa í n. og legg til, að það verði samþ. En til brtt. hv. 1. þm. Reykv. ætla ég ekki að taka afstöðu að svo stöddu.