13.04.1932
Efri deild: 50. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í D-deild Alþingistíðinda. (3246)

23. mál, milliþinganefndir um iðjumál og iðnað

Jón Þorláksson:

Ég ætla ekki að blanda mér inn í deilur þær, sem orðið hafa um hinar mörgu nefndir, sem hæstv. stj. hefir haft sér til aðstoðar undanfarin ár, en út af ummælum hæstv. dómsmrh. um mþn. í vatnamálum tel ég mér skylt að upplýsa, að sá ráðh., sem þetta mál heyrði undir, réð öllum kostnaði við nefndarstörfin, bæði hvað dagpeninga snertir og borgun til sumra nm., sem kaup tóku þar um tíma. Og þessi ráðh. var studdur af Framsókn og tók sæti sem atvmrh. í þeirri samsteypustj., sem settist að völdum í ársbyrjun 1917.