03.05.1932
Neðri deild: 66. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í D-deild Alþingistíðinda. (3268)

23. mál, milliþinganefndir um iðjumál og iðnað

Jón Ólafsson [óyfirl.]:

Ég stend upp af því að mér þykir kenna æðimikils misskilnings á þessu máli. Iðnaðarmenn í Reykjavík hafa haldið þessu máli vakandi í fleiri ár. Þeir hafa snúið sér til þingsins með kvartanir sínar og óskað, að þingið tæki þær til greina, og hefir það verið gert, eftir því sem ástæður hafa verið til. Og nú hafa þeir óskað eftir því, að skipuð yrði n., er tæki mál þessi til sérstakrar athugunar. Ætti það að geta orðið byrjun til þess, að meira væri gert fyrir mál iðnaðar og iðju. En þegar slík till. er borin fram, þá rís hver höndin upp á móti annari og hver misskilningurinn eltir annan. Menn segja, að hér sé um fagmál að ræða og n. til að athuga það eigi eingöngu að vera skipuð iðnaðarmönnum. En menn gæta þess ekki, að í sambandi við þau félög, sem nefnd eru til að skipa menn í n., eru hin stærstu iðju- eða iðnaðarfyrirtæki og því stórra hagsmuna að gæta. Ég kann nú víst ekki að skilgreina það réttilega, hvort þau fyrirtæki, sem rekin eru í sambandi við sjávarútgerðina, teljast til iðju eða iðnaðar. En ég skal geta þess, að í sambandi við botnvörpuútgerðina er rekin vinnsla á veiðarfærum, sem nemur á 2. millj. kr. árlega. Ef það er ekki iðnaður, þá veit ég ekki, hvað iðnaður er. Ég hygg, að varla sé iðnaður hér á landi rekinn í stærri stíl. Ég geri líka ráð fyrir, að S. Í. S. hafi einnig æðimikið af slíku og þvílíku við sinn rekstur. Það er því æðimeinleg villa að halda, að þessi stærstu framleiðslufélög geti ekkert gagn haft af að eiga fulltrúa í slíkri n., eða að þeir geti ekkert til þeirra mála lagt. Ég álít einmitt stórt atriði, að þeir, sem eru fulltrúar fyrir þau félög, sem hafa möguleika fyrir hina víðtækustu iðju, komi saman og ræði þessi mál. Og ég sé ekki betur en að öll þau félög, sem hér eru nefnd, eigi erindi í n., einkum þegar á það er litið, að það á líka að vera verkefni n. að endurskoða tollalöggjöfina.

Það er auðséð, að þeir, sem hafa talað gegn þessari till., hafa algerlega misskilið tilganginn með henni. Það er eins og þeir haldi, að þorskútgerðin sé ekkert annað en að draga fiskinn úr sjónum. En í sambandi við sjálfa veiðina er einmitt rekinn stórkostlegur iðnaður.

Hv. þm. Vestm. bjóst við litlum árangri af slíkri n. Ég skal engu um það spá. Það getur vitanlega orðið lítið. Það verður oft lítið úr starfi. n., einmitt fyrir þá sök, að þegar till. þeirra koma fyrir Alþ., þá gengur svo oft, að hver höndin verður upp á móti annari. Till., sem í sjálfu sér gátu verið nýtar, verða gerðar að afskræmi, af því að menn átta sig ekki á málinu fyrr en þá eftir langan tíma, eða þá að þeir hafa sérhagsmuna að gæta eða kæfa málin í hreppapólitík. Eins er hér. Menn virðast ekki sjá nema einhverjar einstakar greinar iðnaðarins, þótt aðrar miklu stærri séu til og till. sé hvað þær snertir alveg á réttri leið. Ég skil ekki hv. þm. Vestm. og hv. 4. þm. Reykv., sem vilja tefja þetta mál um minnst 1 ár, með því að vísa því til stj., sem þá hefir ekkert leyfi til að skipa slíka n., en hefir sjálf ekki tök eða þekkingu á að vinna slíkt verk. Þetta er vitanlega að leggja stein í götu þessa máls. Þótt n. geti máske ekki unnið mikið starf til næsta þings, þá tefur það samt málið og vísar því af réttri braut, sem það nú er að komast inn á. Ég vona því, að hv. þdm. skoði huga sinn vel áður en þeir ákveða að leggja þann stein í götu þessa máls, sem það er að leyfa því ekki að ná fram.