03.05.1932
Neðri deild: 66. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í D-deild Alþingistíðinda. (3272)
23. mál, milliþinganefndir um iðjumál og iðnað
Einar Arnórsson:
Ég skal fyrst snúa mér að till. um að vísa máli þessu til stj. Ég fæ alls ekki séð, hvað unnið er með þeirri till. Mér sýnist, að afleiðingin af samþykkt hennar gæti ekki orðið önnur en sú, að stj. gerði annaðhvort ekki neitt eða eitthvað í málinu. Að vísa því til stj. getur því þýtt kistulagning málsins, en það vil ég ekki eiga á hættu. En ef stj. tekur málið til meðferðar og gerir einhvern undirbúning á því fyrir næsta þing, eru þá líkur fyrir því, að sá undirbúningur yrði betri eða ódýrari en ef nefnd undirbyggi málið, sem skipuð væri samkv. till. þessari? Ég segi nei. Ég hefi enga tryggingu fyrir því, að svo yrði. Hvernig sem á málið er litið, getur því ekki talizt rétt að vísa því til stj. Það er t. d. vitanlegt, að ef stj. hæfist handa með undirbúning í því, þá geta hvorki ráðherrarnir sjálfir né starfsmenn þeir, sem í stjórnarráðinu vinna, gert þann undirbúning sökum vöntunar á sérþekkingu á þessum sviðum.
Að vísa málinu til stj. þýddi því ekkert annað en að stj. yrði að kaupa menn til þess að vinna verkið, ef hún ætlaði eitthvað að láta gera í því, sem að haldi mætti koma. Gæti því farið svo, að sá kostnaður yrði sízt minni en þó að nefnd í málinu yrði greitt kaup. Frá sjónarmiði þeirra, sem hræddir eru við eyðsluna vegna þessarar nefndarskipunar, getur sparnaður ekki verið ástæða til að vísa málinu til stj.
Þá er það atriðið, sem ýmsir hv. þm. hafa vikið að, og ekki er sæmilegt að setja í till., að ætla nm. að vinna kauplaust. Hvaðan kemur Alþingi heimild til þess að skipa mönnum að vinna kauplaust? Ég þekki þá heimild ekki. Og hvaða trygging er fyrir því, að hæfir menn fáist til að taka sæti í n., ef þeir fá enga þóknun fyrir vinnu sína? Það má vel vera, að einhverjir fáist til þess að taka sæti í n., menn, sem hafa t. d. gaman að því að sjá nafn sitt á prenti, en vitanlega myndi ekkert unnið, nema af mönnum, sem þeir fengju til þess að vinna verkið fyrir sig. Afleiðingin yrði því sú, að nm. sjálfir yrðu óþarfa milliliður, en kaup þyrfti að greiða þeim, sem nefndarmennirnir fengju til að vinna verkið. Það væri því allt og sumt, sem hefðist upp úr þessari hræðslu við að hafa ákvæði um greiðslu til nm., að kaupa yrði aðra til þess að vinna verkið, fyrir jafnvel meira verð en sæmileg þóknun hefði verið til nm.
Hitt er annað mál og ekki nema eðlilegt, að ýmsir séu hræddir við mikinn kostnað af nefndarskipuninni. En hér sannast hið fornkveðna, að skammt er öfganna á milli. Það er allt annað að borga mjög mikið, t. d. í þessu tilfelli fleiri þúsundir, eða hreint ekki neitt.
Hvað snertir skipun manna í n., þá finnst mér tilhögun sú, sem stungið er upp á í till., ekki óskynsamleg. Mér virðist t. d. alveg sjálfsagt, að Iðnaðarmannafélagið bendi á mann í n. Það hefir, eins og kunnugt er, mest borið mál iðnaðarins fyrir brjósti, m. a. byggt skólahús og starfrækt iðnskóla undanfarin ár.
Svipað er að segja um Samband ísl. samvinnufélaga. Það má gera ráð fyrir að það hafi hagsmuna að gæta fyrir landbúnaðinn, og má því ætla, að það bendi á mann, er áhuga og þekkingu hefir á þeim greinum, er hann snerta. Líku gegnir og um Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda. Það hefir sérþekkingu á ýmsum hagsmunamálum, er snerta framleiðslu sjávarafurða. Þá má segja, að Alþýðusamband Íslands sé ekki óviðkomandi aðili í þessu máli, því að hér er jafnframt um atvinnumál að tefla, er mjög má varða hinn vinnandi lýð í landinu. Sambandið og Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda geta hér talizt sem fyrirsvarsmenn framleiðendanna, en hinir aðilarnir fyrirsvarsmenn fólksins, er atvinnuhagsmuna hefir hér að gæta.
Ég mun nú greiða atkv. með till. þessari til síðari umr., en áskil mér rétt til þess að koma fram með brtt., sem ég tel heppilegar.