17.05.1932
Sameinað þing: 10. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 397 í C-deild Alþingistíðinda. (3312)

243. mál, síldarmat

Sveinn Ólafsson:

Hv. frsm. sjútvn. Nd. er hér ekki nærstaddur, og verð ég því að hlaupa í skörðin fyrir hann og minna lítillega á þetta mál.

Þessi ágreiningur, sem orðinn er deildanna á milli um síldarmatið, er nú upplýstur af hv. frsm. sjútvn. Ed., og hefir hann skýrt rétt og öfgalaust frá því, hvað á milli ber. En það, sem verulega skiptir máli í þessu sambandi, og það, sem gerir hinn verulega stefnumun hjá sjútvn. deildanna, er það, að n. í Nd. lítur svo á, að dauði bókstafurinn, sem gilt hefir frá 1919 eða lengur um mat á nýveiddri síld, sé ekki til þess fallinn að binda sig lengur við hann. Það hafa aldrei verið rækt fyrirmæli þessara laga frá 1919 um mat á nýveiddri síld, nema á stöku stað. Það hefir ekki verið hægt að rækja þau nema á stöku stað. Það segir sig sjálft, að veiðimenn, sem dreifðir eru um mörg hundruð mílna langa strönd, geta ekki kallað á matsmenn í hvert sinn, sem bátur kemur að landi með nýja síld og vill salta hana. Þetta er aðeins framkvæmanlegt þar, sem mikið berst að á einn stað, og hefir ekki heldur verið framkvæmt nema þar, ef þá nokkurstaðar nema að yfirvarpi.

Hitt er augljóst, að ef síldarmat á að fyrirskipa hér og það á að fá nokkurt gildi fyrir útflytjendur og álit útlendra kaupenda á síldinni að byggjast á því — ef ver eigum þannig að eignast öruggt mat, þá er ekki um annað að ræða en útflutningsmat. Það þýðir ekkert að segja útlendum kaupanda, að lítið hafi verið á síldina áður en hún var söltuð, og þá hafi hún verið góð vara eftir áliti íslenzkra síldarmatsmanna. Það segir sig sjálft, að þó að síld sé af beztu tegund, þegar hún er söltuð, þá getur hún verið orðin óbrúkleg vara eftir 3 eða 4 vikur, ef ekki hefir verið með hana farið eins og átti við.

Nú er það svo, að sjútvn. beggja d. ber saman um það, að útflutningsmat þurfi að vera. Þó mun n. í Ed., eins og sest á þeim brtt., sem hún flytur á þskj. 719, ekki líta svo á, að það þurfi að vera í öllum tilfellum, því hún gerir ráð fyrir útflutningsmati á síld, þegar yfirmatsmaður telur þess þörf. En það er í mesta máta vafasamt, að yfirmatsmaður geti úr því skorið öðruvísi en með hárnákvæmri skoðun, hvort síldin sé góð vara þegar hún er send úr landi. Því þótt ætlazt sé til, að síldin sé söltuð undir eftirliti matsmanns, þá er vitanlegt að ekki getur hann alstaðar nálægur verið meðan á söltun stendur, og ekki er heldur hægt að vita, hvað varan kann að líða við hirðuleysislega umgengni og meðferð eftir á og áður en hún er flutt á skipsfjöl. N. í Nd. leggur því aðaláherzluna á útflutningsmat á síld og telur, að það sé það eina mat, sem nokkuð verði á byggt. Hún gerir að vísu ráð fyrir, að meðan síld er flutt út og geymd undir eftirliti síldarmatsmanna, þá þurfi ekki að rífa upp úr nema fáum tunnum, svo sem 4–6 við útskipun, af hverju hundraði, því síldarmatsmenn muni hverju sinni geta aflað sér upplýsinga um það, hve vel síldin hafi verið hirt. En jafnframt ætlast hún til, ef síldarmatsmaður hefir orðið var við misfellur í meðferð síldarinnar, að þá verði rannsóknin ýtarlegri.

Um þetta má vitanlega deila, og má vel vera, að reynslan verði fyrst að skera úr um það, hvort nauðsynlegt er að fara frekar út í að skoða síldina en n. í Nd. leggur til. En það verð ég að benda á, að það er einmitt þetta, sem jafnan hefir dugað bezt, að eigendurnir hafi hitann í haldinu vegna sinna eigin hagsmuna. Og þeir eiga mest á hættu, ef síldin er skemmd, og verður þetta því til þess, að þeir gera það, sem þeir geta, til þess að síldin verði góð útflutningsvara, og munu ekki vegna þessara sinna eigin hagsmuna vanrækja að fara eftir settum reglum um meðferð síldarinnar, þegar þeir geta ekki skotið skuldinni á aðra, ef illa fer.

Nú var um fjölda ára útflutningur á síld héðan áður en lögskipað var síldarmat, og ég er ekki viss um, að það hafi verið verulega betur hirt um síldina eða hún notið meira álits þann tíma, sem síldarmat hefir verið í lögum, en áður. hann tíma, sem lögskipað hefir verið að meta alla síld, hafa einmitt komið fyrir stóróhöpp við síldarsöltun, heilir farmar skemmzt svo, að þeir hafa orðið lítt nýtir og óseljanlegir, svo sem 1919. Það hefir sjálfsagt líka stundum stafað af því, að ekkert eftirlit hefir verið haft með síldinni frá því saltað var og stundum um of byggt á fersksíldarmati.

Þessi ágreiningur milli n. er í raun og veru ekki sérstaklega róttækur, og skal ég ekki þrátta lengi um hann, en verð þó að minna á það, að ýmsar af matsskyldum vörum, sem út eru fluttar, svo sem ull, fiskur og fleiri vörur, eru alls ekki metnar fyrr en þær eru sendar. Um þær gildir því útflutningsmat. Það væri líka þýðingarlaust að hafa á þeim mat í öðru skyni en að sanna, að það séu góðar vörur, þegar þær eru fluttar á skipsfjöl. Það mundi ekki verða talið nægja, þó vottorð segðu, að þetta hefðu einu sinni verið góðar vörur, ef þær væru það ekki, þegar þær væru afhentar til markaðar.

Hv. frsm. n. í Ed. benti á það í ræðulok, að þessi stefnumunur, sem fram hefir komið milli sjútvn. Nd. og Ed., mundi að líkum vera að kenna áhrifum einhverra utannefndarmanna, sem ekki væru óvilhallir í þessu máli. Ég skildi þetta ekki fyllilega og skil það ekki ennþá. Ég veit ekki um neitt þvílíkt, og það hefir alls ekki neinn undirróður eða nein launmál átt sér stað um þetta mál við n. í Nd. Og ég get sagt það fyrir mig og meðnm. mína, að við lögðum í þetta mál mikla vinnu og unnum að því í eindrægni og af alúð; veit ég líka vel, að enginn utan n. hefir haft áhrif á úrslit málsins í n. Ég held, að fyrir öllum vaki það að ná æskilegasta og bezta takmarkinu í þessu máli. En það er eðlilegt, að menn greini á um leiðirnar að takmarkinu. N. í Nd. byggir ekki á mati á nýveiddri síld og álítur að það hafi ekki veruleg áhrif á sölu hennar á útlendan markað, en matið er hinsvegar geysilega umfangsmikið, og er vitað, að þetta fersksíldarmat hefir verið stórlega vanrækt undanfarið.

Skal ég svo ekki fjölyrða frekar um þessi atriði. Ég vil vona, að allir hv. þm. hafi fylgzt svo vel með þessu máli og kynnt sér það svo vel, að það sé óþarft að vera að þrátta um það lengur; get ég því látið þessa deilu niður falla af minni hálfu, enda eru hér menn, sem eru miklu kunnugri því en ég, hvað henta muni bezt á þessum tíma, þótt ég hafi reyndar nokkuð fengizt við síldarsöltun og kynnzt henni um 50 ár.