17.05.1932
Sameinað þing: 10. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í C-deild Alþingistíðinda. (3322)

243. mál, síldarmat

Forseti (EÁrna):

Það er rétt, sem hv. frsm. sjútvn. Ed. segir, að annaðhvort verður að samþ. allar brtt. eða enga. En þó er tæplega hægt að bera þær allar upp í einu lagi, og vil ég fyrst sjá, hvernig atkvgr. fer um 1. lið brtt., og ber ég hann fyrst upp til atkv.