04.05.1932
Neðri deild: 67. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í C-deild Alþingistíðinda. (3341)
157. mál, verðtollur
Pétur Ottesen:
Ég get eftir atvikum verið meiri hl. fjhn. þakklátur fyrir afgreiðslu þessa máls. Hefir meiri hl. n. að mestu leyti orðið sammála okkur flm. um það, að nauðsyn bæri til þess, að löggjafarvaldið léði til þess styrk sinn að hlynna að innlendri framleiðslu, eins og við förum fram á í frv., sem sé, að innlendri framleiðslu sé tryggður sá markaður, sem til er í landinu. Af sumum vörum er nú þegar framleitt nóg í landinu sjálfu. Það, sem skortir á, að þörfunum verði fullnægt, kemur innan skamms, sérstaklega ef Alþingi vildi sýna þessari viðleitni skilning og samúð, því að framfaraþrá manna er mikil á þessum sviðum. frá öfgalausu sjónarmiði felst ekki annað í þessu frv. en að tryggja íslenzka framleiðslu. Það er verið að leggja sig í líma til þess að auka innlenda framleiðslu og tryggja henni markaðinn, sem til er í landinu fyrir þessar vörur.
Það hefir verið fundið frv. til foráttu, að það valdi verðhækkun o. s. frv. Það er tilbúningur og heilaspuni, neyðarvörn þeirra, sem hafa búið sig fasta í það, að ekkert megi gera í þessu efni. Það er verið að hrúga inn í landið vorum, sem hægt er að framleiða í landinu sjálfu, fyrir hundruð þúsunda eða millj. kr. árlega. Skil ég ekki þennan hugsanagang yfirleitt, en þó einkum þegar svo er ástatt sem nú, að erfitt er um allar atvinnubætur og ekki horfur á öðru en að sumir atvinnuvegir landsmanna leggist í auðn, af því að markaðsskilyrði erlendis eru svo erfið, að ekki svarar kostnaði að framleiða fyrir þá markaði. Það er óskiljanlegt, að ekki skuli allir landsmenn geta sameinazt um það, að framleiðslan notist sem bezt í landinu sjálfu, því að svo er bezt hamlaði á móti kreppu, að landsmenn hafi sem mest not uppskeru sinnar.
Hv. 4. þm. Reykv. taldi, að þetta væri áframhald stefnu, er hér hefði áður komið fram á Alþingi, verndartollastefnunnar. Hefir verið bent á, að þessi stefna er nú að ryðja sér til rúms í öðrum löndum, og getum við ekki tekið okkur þar út úr, án þess að ganga í berhögg við hagsmuni sjálfra okkar. Þegar aðrar þjóðir loka markaði fyrir okkur vörur eða leggja svo þunga tolla á þær, að það verkar lamandi á atvinnuvegi okkar og verður sama sem innflutningsbann á vörurnar, þá ættum við ekkert tillit að taka til þess ! Það væri sama og að leggja árar í bát, sama og uppgjöf þjóðarinnar við það að bjarga sér. Auðvitað getum við ekki nema að litlu leyti bjargað okkur á þennan hátt, en það væri þó óforsvaranlegt að gera ekki í þessu efni það, sem við getum. Og þessi stefna er nú að verða sterkari og sterkari með þjóðinni. Var hafizt handa af framsýnum og gætnum mönnum, sem undirbjuggu íslenzku vikuna, sem hefir sett mót á íslenzku þjóðina. Á eftir að verða meira gagn að þessu, þegar þessi fagra hugsun þroskast meira og dafnar. Ef Alþingi vill ekkert gera í þessu efni, þá synir það, að þingið er í ósamræmi við það sem er að gerast með þjóðinni utan Alþingis. Er það varasamt fyrir Alþingi að brjóta í bág við jafnalmenna stefnu og þá, sem nú er uppi með þjóðinni, að tryggja framleiðendum sem bezt þann markað, sem til er í landinu, og yfirleitt efla innlenda framleiðslu til eigin nota. Öll mótspyrna gegn þessu er í andstöðu við þá stefnu, sem nú ryður sér mjög til rúms hér á landi.
Hv. þm. Seyðf. talaði um, að verið væri að efla innlendan iðnað með því að gera voruna dýrari fyrir neytendur, og minntist í því sambandi á mjólkurniðursuðuverksmiðju þá, sem komið hefir verið á fót í Borgarfirði. Ég get upplýst það, að mjólk frá þessari verksmiðju, sem komin er nú hér á markaðinn, er að verði og gæðum fyllilega samkeppnisfær við niðursoðna mjólk frá útlöndum. Þegar svo þar við bætist, að mjólkurniðursuðverksmiðja Borgfirðinga getur meira en fullnægt þörfum landsmanna, þá er hér ekki um annað að ræða en það, hvort ekki geti komið til mála, að þessi framleiðsla sæti ein að innlenda markaðinum.
Við álítum sjálfsagt að gera ráðstafanir til þess, að þetta geti orðið nú þegar. Er það vanafesta hjá landsmönnum, sem veldur því, að þeir kaupa sérstakar tegundir mjólkur, þótt aðrar jafngóðar komi á markaðinn. Þetta mun reyndar hverfa smám saman, en þó er rétt að stuðla að því að tryggja þessari góðu innlendu framleiðslu markaðinn nú þegar. Er óþarfi að vera að taka 400 þús. kr. af andvirði því, sem fyrir íslenzkar vörur fæst, til þess að flytja inn mjólk frá útlöndum. Sú tilhögun, sem hér er farið fram á, léttir líka fyrir um gjaldeyrisspursmálið.
Er mér það ráðgata hvernig vanafesta getur þannig hlaupið með menn út í öfgar, að þeir vilji ekki stuðla að þessu máli. Reynslan hefir sýnt, að mjólk sit, sem nú er soðin niður hér, stendur fullkomlega á sporði hvað gæði snertir beztu tegund erlendrar mjólkur, sem hingað flyzt.
Hv. þm. Vestm. minntist á það, að mjólkin frá Mjöll hefði reynzt stundum miður vel. Það er rétt, að svona var það um eitt skeið. En það er óþarfi að blanda því saman við það, sem nú er. Verksmiðjan hefir verið byggð upp á ný, það hafa verið fengnar nýjar vélar og fagmaður frá útlöndum, til þess að tryggja góða voru. Eru hér sömu tryggingar fyrir þessu sem í beztu verksmiðjum erlendis.
Hv. þm. Vestm. talaði um það, að menn gerðu það ekki að gamni sínu að kaupa miklar mjólkurbirgðir frá útlöndum. Þetta átti við, meðan engin slík verksmiðja var til í landinu, er fullnægði eftirspurninni, en nú er það bæði ónauðsynlegt og skaðlegt að vera að flytja inn útlenda mjólk. Þeir, sem eru að vinna á móti þessu máli, gera ekki þjóðinni þarft verk.
Hv. þm. Vestm. líkti þessu banni á mjólk við innflutningsbann á kartöflum, sem lá hér fyrir þessu þingi, enda þótt hér væri ekki framleitt nóg af kartöflum. Verð ég að segja hv. þm. það enn einu sinni, að það bann átti aðeins að gilda á þeim tímum, sem nógar birgðir væru í landinu af þessari voru, en að öðru leyti var innflutningur frjáls og óhindraður. Þetta bann var því mjög takmarkað. Ég leiðrétti þetta hjá hv. þm. tvisvar eða þrisvar við umr. um kartöflurnar. Þykir mér leiðinlegt, að ég skuli ekki komast hjá því að endurtaka þetta.
Um eggin, sem við leggjum líka til, að komi undir A-flokkinn í 1. gr. l., er það að segja, að eggjaframleiðsla hefir sexfaldazt hér á síðustu árum, og þessi aukning hefir meðal annars átt sér stað með þeim hætti, að menn hafa sett upp stór eggjabú, sem rekin eru með sama sniði og beztu nýtízkubú erlendis, bæði um útungun og annað. Það er því uppi í landinu mjög mikil og sterk viðleitni til þess að fullnægja eggjaþörf landsmanna, og mundi það spor stigið til fulls á örskommum tíma, ef Alþingi vildi leggja því nokkurt lið, með því að tryggja framleiðendum hinn innlenda markað. Hafa þeir ætíð á boðstólum góð, nýorpin egg, en aftur á móti hefir það verið algengt, að hingað hafa komið skemmd og brotin egg frá útlöndum, sem fleygja hefir þurft í sjóinn. (EA: þjóðernissinnuð egg geta líka brotnað).
Hv. þm. Seyðf. talaði um stefnumál flokkanna í þessu efni, kvað hann sjálfstæðismenn hafa eina stefnuna, framsóknarmenn aðra og sócíalista hina þriðju, nefnilega þá, að berjast á móti ollum stuðningi við íslenzka atvinnuvegi. Eru þeir alltaf að berjast á móti því, að íslenzkum atvinnuvegum sé veittur stuðningur. Stefna sócíalista er sú í þessum málum, að veita beina styrki til einstakra manna, atvinnuleysisstyrki eða styrki til að vinna fyrir verk, sem engin trygging er fyrir, að árangur verði af. Hér er stefnumunur milli sócíalista og hinna flokkanna, sem vilja styðja innlenda framleiðslu. Þetta er skýr og ljós stefnumunur, og þakka ég hv. þm. fyrir það að hafa gefið mér tilefni til þess að benda á þetta.
Út af orðum hv. þm. Seyðf., að þessari niðursuðuverksmiðju í Borgarfirði, sem nú starfar, hafi verið veittur styrkur í fjárl., vil ég geta þess, að hún hefir engan styrk fengið frá því opinbera og fer heldur ekki fram á hann. Eini styrkurinn, sem hún fer fram á við Alþingi. er sá, að það veiti stuðning til þess, að hún geti setið að markaðinum, gegn því, að hún skapi jafngóðar og ódýrar vörur og þær, er koma frá útlöndum.
Held ég þá, að ég hafi komið inn á flest atriðin, er snerta þann stuðning, er hér er um að ræða við mjólkur- og eggjaframleiðsluna. Vil ég þá minnast með nokkrum orðum á prjónagarnið. Höfum við flm. látið skattinn ná til þess líka og rokstutt þá till. með því, að ull landsmanna er því nær óseljanleg á erlendum markaði. Þar sem þörf manna á ull til klæðnaðnar hlýtur að vera mikil í jafnköldu landi, þá hlýtur hér að vera mikill markaður fyrir ullina. Viljum við stuðla að því, að ullin verði betur notuð en nú er til fatagerðar hér innanlands. Er ekki hægt að mæla á móti því, að mikil vinna skapast fyrir landsmenn við það, að hér verði unnið úr þeirri ull, sem ekki selst, eða þá fyrir lagt verð. Sparast við það mikil innkaup á klæðnaði úr bómull, eða þá okkar eigin ull, sem gengið hefir gegnum erlendar verksmiðjur. Er mikil ástæða til þess að gera eitthvað í þessu efni, því að klæðagerð hefir tekið hér miklum framförum, og hér er nú farið að vefa ágæta dúka, sem allir geta verið vel sæmdir af.
Auk þess hefir mikil framför orðið í heimilisiðnaðinum á síðustu árum. Spunavélar er mjög víða komnar, sem flýta vinnslu ullar og gera hana auðveldari. Verksmiðjur hafa líka verið settar upp, sem spinna band úr ullinni og hafa það til sölu. Eru því miklu fullkomnari skilyrði en áður voru til að færa klæðagerðina inn á það svið, að nota til hennar íslenzka ull, í stað hræónýts bómullarfatnaðar, sem búinn er til erlendis að öllu leyti, og prjónagarns, sem talið er að vera úr ull, en siglir oft undir fölsku flaggi, þannig að í því er oft meira og minna af ódyrum og ónýtum efnum. Er því sannarlega tími til þess kominn fyrir þingið að gera það, sem í þess valdi stendur, til þess að notuð sé hin íslenzka ull sem allra mest í landinu sjálfu, eins og líka þær matvörur, sem hér eru framleiddar. Ég hefi flutt till., sem við flm. frv. erum að vísu báðir um, þótt aðeins mitt nafni standi á henni, um að lækka tollinn á prjónagarni í 15%.
Í sambandi við það, sem hér hefir verið haldið fram, að vegna þess að upp er komin prjónastofa, ein eða jafnvel fleiri, sem vinnur prjónaföt úr ullarefni, þá myndi þessi innlenda prjónafatagerð fara um koll, ef settur væri mjög hár tollur á innflutt prjónagarn, get ég sagt, að ég tel það virðingarvert að koma upp slíkri stofnun eða stofnunum, og það þótt unnið sé úr erlendu efni að einhverju leyti. En við ætlum ekki neitt að ganga í berhögg við þær með þessu. Aðeins yrði því náð í enn fyllra mæli, að þessar stofur ynnu sem mest úr innlendu efni, úr íslenzku prjónagarni úr íslenzkri ull, sem framleitt væri hér á snyrtilegan hatt og þyldi hvað það snerti samanburð við erlent garn, en yrði fullkomnara og tryggara fyrir það að vera gert úr haldgóðu efni, hinni íslenzku ull, miklu haldbetra en blandað útlendu efni, eins og fljótt sýnir sig í sliti. — Það ætti því ekki að verða til neins ógagns fyrir prjónastofurnar, þótt slíkur tollur sé samþ. En hinsvegar ætti það að vera trygging fyrir því, að íslenzkt ullargarn yrði notað meira.
Hv. þm. Seyðf. var að tala um, að það væri að berja höfðinu við steininn að ætla sér að koma því fram, að við Íslendingar fengjumst til að klæðast íslenzkum flíkum yzt sem innst. Ég trúi þessu ekki, og ég held, að að yrði þungt lóð á þessari vogarskál, ef Alþ. vill einhuga styðja að því að tryggja íslenzkum framleiðendum, að vörur þeirra verði sem allra mest notaðar í landinu sjálfu, eftir því sem hægt er á hverjum tíma.
Þá varð hv. þm. Vestm. ærið fjölrætt um grænmeti. Hann sagði, að grænmetisneyzla ykist hröðum skrefum, og væri það eðlilegt, þar sem þetta væri holl fæða og góð. Þetta er vitanlega alveg rétt. Við höfum allt fram að síðustu árum ekki framleitt nógu fjölbreyttar matjurtir, til þess að fullnægja kröfum manna á þessu sviði, eftir að grænmetisnotkun fór að aukast. En svo er fyrir að þakka, að augu manna hafa á síðustu árum opnazt fyrir því, að bæta má úr þessari þörf á þann hátt að nota jarðhitann við ræktun þess grænmetis, sem hið kalda veðurfar leyfir annars ekki, að sé ræktað hér. Og nú er svo komið, að nota má jarðhitann til þess að bæta upp það, sem hér skortir á sól og sólarhita. Og á veturna, þegar frost og snjór hamlar annars öllum gróðri, þá má nota jarðhitann til að veita nytjajurtum þann yl, að þær nái sama þroska og væru þær ræktaðar í Ítalíu. Reynslan hefir sýnt, að nota má sól og yl sumarsins hér, og svo jarðhitann, þegar kaldara er, til að rækta hér hitabeltisgróður. Við erum nú langt komnir áleiðis með að fullnægja þeirri þörf, sem hér er fyrir grænmeti, ásamt því, sem við getum fullnægt þörfinni fyrir aðrar matjurtir. Er því engin hætta á að veita þann stuðning, sem hér er talað um, sem er það, að láta það fé renna í atvinnuvegi landsmanna, sem nú fer út úr landinu. Má segja, að það sé stór ávinningur, að þjóðin geti á sem flestum sviðum orðið sjálfbjarga, og þá einnig í þessu efni.
Ég skal þá enda mína ræðu. Ég vænti þess, þrátt fyrir þá sorglegu reynslu, að andmæli hafa komið fram gegn þessum till., að þá verði samt nógu margir hv. þm., sem átta sig á því, að hér er um þjóðhagslegt gagn að ræða. Hitt væri sorglegur vottur, ef svo margir hv. þm. væru orðnir það utangáttar um þörf þjóðarinnar, að þeir stæðu gegn öllum þeim hreyfingum, er stuðla að framgangi íslenzkrar framleiðslu, hvort heldur það er til framleiðslu matvæla eða til klæðagerðar.