04.05.1932
Neðri deild: 67. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 428 í C-deild Alþingistíðinda. (3342)
157. mál, verðtollur
Einar Arnórsson:
Ég get verið stuttorður, því að búið er nú þegar að taka fram ýmislegt það, sem rétt er að nefna í sambandi við þetta mál. Þarf ég því eigi að endurtaka það.
Það var viðbúið og vitanlegt, að hv. þm. Borgf. mundi tala fyrir þessu máli af miklum krafti og mælsku, líkt og hann gerði þegar kartöflubannið var til umr. hér í vetur. Höfuðrökin voru hin sömu: að tryggja markaðinn. Jafnframt hefir hv. þm. látið þess getið, að vörur þær, sem hér um ræðir, niðursoðin mjólk, egg og grænmeti, framleiddar hér á landi, stæðust fyllilega samanburð við erlendar vörur hvað gæði snertir. Ég efast ekki um, að þetta sé rétt hjá hv. þm. Borgf., að sú niðursoðin mjólk, egg og grænmeti, sem framleitt er hér, sé eða a. m. k. þurfi ekki að vera að neinu lakari vara en samskonar útlend vara, sem hér er kostur á að fá. En af þessu leiðir þá óhjákvæmilega það, að íslenzka varan er ekki síður útgengileg. Mér er nú alveg óhætt að fullyrða, að t. d. margir Reykvíkingar kaupa fremur innlenda voru en útlenda, ef kostur er á jafngóðri innlendri voru og verðið er ekki að mun hærra. Ég held því, að það sé ekkert nema misskilningur, að tryggja þurfi markaðinn fyrir slíka innlenda voru hér. Ég held, að hann sé vel tryggður. Vegna hans þarf ekki að tolla þessar vörur.
Ég held nú, að í þessu efni sé bezt að vera alveg hreinskilinn og segja eins og er, að tilgangurinn með frv. er sá einn, og enginn annar, að fá hærra verð fyrir þessar vörur en annars væri. Þetta verður a. m. k. afleiðingin af samþykkt frv., og vitanlega er það líka tilætlunin. Ég er ekki að lá framleiðendunum, þó að þeir vilji fá tolla lagða á í þessu skyni. En þeir verða líka að skilja, að neytendurnir, þeir sem kaupa vöruna, vilja heldur ekki borga öllu meira fyrir hana en þeir annars mundu þurfa, ef samkeppnin væri frjáls. hér verða hvorir að skilja aðra. það er skiljanlegt, að framleiðendurnir vilji fá hátt verð fyrir vörur sínar. En það er líka jafnskiljanlegt, að við, sem kaupum þær, viljum ekki gefa fyrir þær hærra verð en þörf er á.
Það er ekki svo, að framleiðsla á eggjum hér á landi sé enn svo mikil, að hún fullnægi þörfinni, a. m. k. ekki á sumum tímum árs. Meðan svo er, þá sýnist mér ákvæði frv. um að leggja 30% verðtoll á egg mundi leiða til þess, að eggjaskortur yrði hér á sumum tímum árs, eða þá að eggin yrðu afardýr — eða þá hvorttveggja. En þegar magn einhverrar framleiðslu er komið á það stig, að það fullnægir eftirspurninni, þá er engin þörf á verndartollum. Þá verður íslenzka framleiðslan eingöngu keypt og hinni erlendu þar með útrýmt. Við höfum dæmi um þetta, þar sem er smjörlíkisgerðin íslenzka. Og svo verður um hverja þá voru aðra, sem verður kunn að því að vera bæði góð og ódýr og nægilega mikið er framleitt af. Þegar svo er komið, þokar útlenda varan sæti fyrir henni og hverfur af markaðinum.
Um þessar vörutegundir, sem hér eru nefndar, er það að segja, að ég held, að það sé ábyrgðarhluti að hefta innflutning þeirra eða gera þær dýrari en þörf er a. Ég er ekki læknisfróður, en mér er sagt — og ég þykist vita, að það sé satt —, að grænmeti og egg séu nauðsynleg sjúkrafæða. Að þær fæðutegundir hafi í sér efni, sem ómissandi séu til viðhalds heilsu og þrótti mannlegs líkama. Að gera slíka voru dýrari en þörf er á, er ekki rétt, og eiginlega mikill ábyrgðarhluti, jafnvel þótt íslenzk framleiðsla eigi í hlut. Ég hefi heyrt lækna halda því fram, er ég nú hefi sagt, og hefi ég trúað því. En nú er ég svo heppinn, að sjálfur landlæknirinn á sæti hér í þessari hv. deild. Getur hann þá leiðrétt, ef ekki er rétt með þetta farið. En annars þykist ég vita, að hann sé sammála mér um þetta.
Ég skil það vel, að það eru héraðshagsmunir, sem hér eiga hlut að máli, og þá sérstaklega þeirra héraða, sem að hv. flm. standa. Ég er ekki að lá þeim, þótt þeir komi með hugmynd í svipaða átt sem þessa, eða kartöflubannshugmyndina, sem leitt hefði til hins sama, ef hún hefði komizt til framkvæmdar.
Það var handhæg rökfærsla hjá hv. þm. Borgf., að vitna til þess alheimsstríðs, sem nú fer fram á viðskiptasviðinu og lýsir sér í þykkum og háum tollmúrum. En ég vil segja, að allir slíkir múrar, ef þeir eru ekki til allsherjarþjóðhagseflingar, eiga engan rétt á sér. Um það ættu allir að geta verið sammála. Og þótt mikið sé gert að þessu nú, þá varir það ástand varla lengi. Vegna alþjóðahagsmuna verður að rifa þá múra niður, sem nú eru byggðir. Það er heldur ekkert almannasamþykki fyrir því, að þessi stefna sé rétt. Hún getur máske verið gagnleg á vissum sviðum og vissum tímum. En það er ekki gagnlegt í neinu þjóðfélagi að hlynna að fáum mönnum á kostnað allra hinna. Og þótt með þessu frv. sé hlynnt að nokkrum framleiðendum, sérstaklega þó hér í nágrenni Reykjavíkur, þá er það ekki rétt stefna, þar sem hún myndi leiða til þess, að aðrir — og það fjöldinn — yrði annað tveggja að vera án vörunnar eða kaupa hana hærra verði, a. m. k. suma tíma árs.
Eins og líklegt var, þá hafa nú rökin með og móti þessu frv. lent mjög í hinu sama fari og átti sér stað, þegar kartöfluumr. fóru fram. Og þar sem þær umr. urðu mjög langar — þær stóðu víst yfir nærfellt viku —, þá ætla ég fyrir mitt leyti ekki að gera leik að því, að þessar umr. verði jafnlangar, enda ætti það að vera óþarfi, þar sem svo skammt er umliðið frá kartöflumálinu. Læt ég því máli mínu lokið.