25.04.1932
Neðri deild: 59. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í C-deild Alþingistíðinda. (3370)
226. mál, jarðræktarlög
Hannes Jónsson:
ég er nærri hissa á því, að það skuli geta komið fram mótmæli gegn þessu frv., sérstaklega vegna þess, að þær breyt., sem orðnar eru á skipun búnaðarþingsins, eru þannig, að þær munu áreiðanlega hafa margt gott í för með sér. En til þess að þær breyt. nái fullkomlega tilgangi sínum, þarf einmitt sú skipun að komast á Bfél. Ísl., sem farið er fram á í frv. Það þarf að gera allt til þess að auka sem mest áhugann í starfsemi félaganna. Og þau, sem senda sína fulltrúa á búnaðarþingið, munu finna meiri hvöt hjá sér til að vinna af alúð, er þau geta ráðið hverjir eru í stj. Búnaðarfélagsins. Það er líka nauðsynlegt, að ekki komi til árekstra milli þingsins og Búnaðarfél. Þetta samstarf verður því að tryggja á þann hátt, sem frv. gerir ráð fyrir. Við skulum hugsa okkur t. d., að Alþ. hefði látið reisa fótstall undir minnismerki Jóns Sigurðssonar hér á Austurvelli og hefði hugsað sér að láta standmyndina snúa að alþingishúsinu. Hugsum okkur ennfremur, að einhver annar hefði átt að setja myndina á stallinn, t. d. eigandi kaffihússins „Vífils“ hér á móti, og hann hefði látið hana snúa að sér, en bakhlutann að alþingishúsinu. Búnaðarfél. Íslands ætlar að reyna að tryggja sér, að bakhluti stj. snúi ekki að sér. Þetta er eðlilegt. Það þarf að vera samræmi í öllum framkvæmdum Búnaðarfélagsins, og það verður því aðeins, að það ráði eitt yfir sínum málum. Það er ekki nema firrur, að Búnaðarfél. fái svo mikið fé frá Alþ., að réttlátt sé, að Alþ. ráði yfir því. Þingið er sjálft búið að ákveða, hvernig þessu fé skuli varið, og félagið hefir því engin áhrif í þeim efnum. Búnaðarfél. hefir ekkert annað að gera en að safna skýrslum og greiða samkv. þeim.