25.04.1932
Neðri deild: 59. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í C-deild Alþingistíðinda. (3372)
226. mál, jarðræktarlög
Hannes Jónsson:
Þetta er röng ályktun hjá hv. 4. þm. Reykv. Alþ. hefir fyrst og fremst sett standmyndina þarna af því, að fyrirfram var ákveðið, hvernig hún ætti að snúa. En svo riftast þetta allt, þegar annar aðili kemur og lætur hana snúa eftir sínu höfði. Þeir, sem leggja grundvöllinn, ráða einir, hverjir eiga að framkvæma þessi verk og hverjir eiga að stjórna þeim. Þessi líking hefir umhverfzt allherfilega í höfði hv. þm., gagnstætt öllum réttum hugsanagangi.