16.04.1932
Efri deild: 53. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í C-deild Alþingistíðinda. (3417)
92. mál, kartöflukjallarar og markaðsskálar
Jón Baldvinsson:
Ég vildi gera fyrirspurn til hv. landbn., sem hefir haft málið til meðferðar, um það, hvað hún hefir gert við frv. síðan það var hér við fyrri hluta þessarar umr. Mér skildist þá, að hv. n. væri ætlað að yfirvega það, hvort ekki væri heppilegt að breyta frv. á þann hátt, að það fæli í sér heimild fyrir stj. til þess að leigja geymslustað fyrir kartöflur, en ekki til að byggja. Ég vildi aðeins heyra það, hvað n. hefir gert allan þennan tíma, sem liðinn er síðan frv. var hér til umr. síðast.